Það er nú það sem mig grunaði líka að þessi "nafnastuldur" væri að mestu kominn frá gömlum refum á Gestapó. En síðustu daga er ég farinn að efast um það. Fastir gestir Baggalútar hafa oftast vitað hvenær nóg er komið og gírn orðið að heimskulegum fíflagangi. Mér finnst t.d ég hafi farið yfir mörkin í krossgátu gríninu en kenni um Koníaki í lítra vís og skemtilegum drykkju félaga en við espuðum hvort annað upp í þeim hasar sem gekk heldur langt, ekki síst í full ljótu orðbragði. Hef að vísu ekki fylgst með nokkuð lengi, en eftir að hafa byrjað aftur finnst mér eins og ég hafi aldrei farið. Og þessi nafnaþjófnaður er kominn útfyrir þau mörk sem þeir gömlu hér venjulega fara. Það er allt annað mál að leika tvö eða fleiri hlutverk en nafnadellan hefur orðið til þess að allir nýir eru tortryggðir.
hvernig hatt?
Ef ég sé með hattinn..........
Ekkert smá fræg setning maður!
Byrjaðu innlegg á stórum staf og ég mun ekki leggja þig í einelti - strax.
Þetta er allt saman rógburður!
Ég trúi ekki að loforð séu svona auðveld að borða..það er ekkert sem ég þarf að hafa fyrir því að klippa í sundur kremið fyrir slóvenskan pakkamat.
Gefur Tigru kakó Svona svona, þú jafnar þig. Vonandi.
Drekkur kakó og róast
Ég hef ákveðið að skrifa ekkert á Baggalút á morgun vegna álags í dag. Bara svona að láta ykkur vita.
Ég hef ákveðið að svíkja loforðið.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Já, nú getur þessi þráður loksins aftur staðið undir nafni. En hvað finnst mönnum, ætti ég jafnvel að taka upp gamla útlitið líka?
Nei, þjer eruð miklu virðulegri svona.
Hefði annars ekki verið hægt að blanda nöfnunum saman í eitthvað virðulegt eins og Don Dúddi De Vito ?
Það er pæling. Leggur hausinn í bleyti