Ekki lesa nema hafa séð myndina.
Sko, afhverju vann Anakin ekki Obi-Wan fyrst hann átti að vera svona ægilega öflugur? Ég skal segja ykkur það, hann var svo utan við sig og gat ekki einbeitt sér. Hann var alltaf að hugsa "Hvað er eiginlega málið með þessa FOKKING HUGE bólu á enninu á honum Obi!"
Bólan var samt greinilega ill, því hún útskýrir hversvegna Anakin fór yfir í myrku hliðina þrátt fyrir aðvaranir Obi-Wan. Hefur þú reynt að hlusta á mann meða risastóra bólu á enninu?
Obi: Þú verður að vara þig á myrku hlið máttarins
Anakin: - [djöfuls fokking huge bóla, ætli hann viti ekki af henni?]
Obi: Varaðu þig á Palpatín
Anakin: - [Komdu nær svo ég geti kreist þetta kvikindi]
Obi: Anakin ertu að hlusta?
Anakin: Ha, jujá. [BÓLA!]
Vissuð þið að ástæðan fyrir því að Obi-Wan dó í fyrstu Star Wars myndinni var sú að Alec Guinness var orðinn hundleiður á því að leika í þessari mynd, sem hann taldi vera hina örgustu þvælu?
Fáviti er hann.
Sýndu hinum látnu virðingu, moppan þín...
Legg til þetta venjulega. Bendir á bálköst Ókeibb?
Legg til þetta venjulega. Bendir á bálköst Ókeibb?
Bíðum aðeins rólegir, getur ekki verið að bauv hafi bara bauvað innskráninguna sína og óvart nýskráð sig sem bauw?
Það má vel vera, mig langar bara að brenna eitthvað!
Væri ekki betra að fara bara í allsherjar gjöreyðingarstríð ef á annað borð á að brenna eitthvað ? Ljómar upp
Ég hef ekki heyrt betri hugmynd svo dögum skiptir. Verður ekki örugglega partí þegar því er lokið?
Jú og jafnvel meðan á því stendur Ljómar upp og safnar saman ákavíti og ný-últrakóbaltsdufti til að hafa með í hernaðarleiðangrinum
Fagnar þessari hugmynd ógurlega Hverju skal gjöreyða fyrst?
Horfir á landakort og hugsar sig um
Erfitt að segja... Noregi kannski ?
Ég legg til að við skemmum Alabama fylki.
Hmm... hvað með Tasmaníu? Ljómar upp Ljómar aftur niður Nei annars, valslöngvan mín drífur ekki svo langt... Ljómar upp Hvaða rugl er þetta, ég bara fæ mér eitt stykki flugmóðurskip, það ætti að duga!