Ég, Órækja, er ekki lengur háður Gestapó. Hef ég með þessu fyrirgert rétti mínum til áframhaldandi Gestapó vistar, greiðslum úr sjóðum Baggalúts og Baggalútíu og frímiða á árshátíðina?
Nei, það held ég ekki... ef þú bætir ráð þitt fram að árshátíð þá held ég að enginn erfi það við þig.
Ég held að ég, Golíat, sé líka laus við mína Gestapófíkn. Er í lagi að maður reki inn nefið endrum og sinnum þrátt fyrir það?
Ég lofa að koma ekki á árshátíðina.
Hvað er málið? Eruð þið allir að spila World of Warcraft eða eitthvað svoleiðis?
Heyrðu nú mig... það er einhver Ira Murks að herma eftir mér!
Nei, hann er að herma eftir mér.
Steliþjófur.
Dularfullt... Gestapófíkn vor hefur líka minnkað eitthvað, er að vísu enn frekar mikil. Það er vissulega slæmt ef jafn ágætir Bagglýtingar og Órækja, Golíat og Vamban hálfpartinn hverfa vegna skorts á Gestapófíkn Veltir fyrir sjer hvort unnt sje að flytja fíknina milli fólks þannig að hún minnki við það hjá einum Bagglýtingi en aukist hjá öðrum.
Er þetta ekki bara vegna þess að það er komið sumar?
Dansar berfætt í grasinu
Er þetta ekki bara vegna þess að það er komið sumar?
Dansar berfætt í grasinu
Eigi er það líklegt því haustlegt finnst oss tíðarfarið.
Er þetta ekki bara vegna þess að það er komið sumar?
Dansar berfætt í grasinu
Eigi er það líklegt því haustlegt finnst oss tíðarfarið.
Hún er komin til Odense í huganum. Hér eru góðar 20 gráður (á daginn) og yndislegt veður.
-
Dvínar fíknin með tímanum segiði ákveður að nota tíman vel
Gestapófíkn mín hefur minnkað aðallega vegna þess að kærastan er orðin aðal áhugamálið. Ljómar upp
Gestapó fíkn mín hefur minkað vegna þess að nú vinn ég alla daga frá kl 17:00-02:00 og sef venjulega fram á hádegi.
Gestapófíkn mín hefur minnkað aðallega vegna þess að kærastan er orðin aðal áhugamálið. Ljómar upp
Einhverjir gestir hjer hljóta þá að hafa ástæðu til að öfunda yður. Hinsvegar hlýtur hin fullkomna lausn að vera að gera kærustuna að Gestapófíkli Ljómar upp.
Gestapófíkn mín hefur minnkað aðallega vegna þess að kærastan er orðin aðal áhugamálið. Ljómar upp
Stynur
Mikið hlýtur þú að vera yndislegur kærasti.
Maður reynir sitt besta.
Pardon, en ég verð að hætta í bili, því ég þarf að yrkja vísu dagsins, þriðja daginn í röð. Fyrstu tvær éru í Mogganum í dag. Úps, kom ég upp um mig?