Gætið ykkar strákar. Það er staðreynd að um leið og karlmaður fattar konur, þá breytist hann í homma.
Nú eru 2½ ár síðan eitthvað gerðist hjer síðast. Er ekki komin niðurstaða úr þeim vísindalegu rannsóknum er hjer hafa farið fram ? Bíður spenntur eftir hinu endanlega svari við viðfangsefni þráðarins.
Ræskir sig og blaðar í þykkri skýrslu Jú, nú er það komið á hreint að konur hugsa aðallega um mig. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Rýnir betur í skýrsluna Hér stendur nú líka að karlmenn hugsi líka um mig. Ljómar upp
Fyndið að sjá undirskrift Kargs í þessu innleggi.glottir.
Annars held ég að þær hugsi ekki neitt.
Þið vitið ekki um hvað ég er að hugsa.. Glottir eins og fífl
Já en ég hélt að við kvenmenn værum eins og opin bók Starir þegjandi út í loftið
Opin bók já - skrifuð með egypsku myndletri. Starir þegjandi út í loftið
Og skilja ekki allir það myndletur? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Jú - velflestir allavega. En svo er þetta dulkóðað með AES í ofanálag.
Að reyna að skilja konu er eins og að fara inn í svörtustu frumskóga Afríku... maður veit aldrei hvað kemur næst og maður er drulluskelkaður yfir því... þess vegna er best bara að sleppa því að reyna að fatta þær og bara njóta þess að þær nenna að umbera mann... stundum.
Æjh æjh... þá er lítið hægt að hjálpa ykkur karlmönnum... en þið eruð nú samt sjálfir ekkert mikið skiljanlegri en við!
Við eigum nú ekkert voðalega auðvelt með að skilja ykkur alltaf..
Þið getið líka prófað eitt.. ef þið skiljið okkur ekki.. þá er hægt að spurja. Flissar
Ohh Villimey eins og talað útúr mínu hjarta! þeir eru sko ekkert skiljanlegir þótt þeir haldi það.. það er ekkert alltaf auðvelt að skilja þá þegar þeir tala í kringum hlutina.. kannski spurning um að segja þá bara hreint út? Starir þegjandi út í loftið
Æjh æjh... þá er lítið hægt að hjálpa ykkur karlmönnum... en þið eruð nú samt sjálfir ekkert mikið skiljanlegri en við!
Segi það með þér. Þið röflið yfir því hvað við erum óskiljanlegar og gerið ykkur ekki grein fyrir óskiljanlegleika ykkar sjálfs.
Annars kann ég nú ágætlega á bæði kynin. Það eru bara bauv og plebbin sem ég skil ekki!
Klórar sér í höfðinu
Sem er skárra en að stjórnast af svo mikilli heimsku að maður kann ekki á Caps Lock takkann á lyklaborðinu...
Sem er skárra en að stjórnast af svo mikilli heimsku að maður kann ekki á Caps Lock takkann á lyklaborðinu...
Þarna náðir þú mér aldeilis - ha! - Ég kann ekki á CAPS LOCK takkann á lyklaborðinu - helvítis örviti.