Hugsar margar hugsanir sem eru þess eðlis að það er eins gott að hitt kynið skilji þær ekki
Prísar sig sælan fyrir að skilja ekki þessar hugsanir
Ég er kona, ég hugsa.
Hugsar djúpar hugsanir en gleymir þeim jafnóðum
Ég ætla ekki að hugsa nokkurn skapaðann hlut í dag
Sest í lótusstellingu og tæmir hugann
Ég ætla ekki að hugsa nokkurn skapaðann hlut í dag
Sest í lótusstellingu og tæmir hugann
Prófaði það einusinni að æfa mig í því að hugsa ekki neitt. Lagðist niður helst útivið og reyndi að tæma hugann algerlega. Virtist ómögulegt til að byrja með, en eftir stuttan tíma og tiltölulega fáar tilraunir náði ég nokkuð góðum tökum á þessu.
Og þetta var nokkuð merkileg upplifun þegar best tókst til.
Því miður hætti ég þessum tilraunum við að stjórna heilastarfseminni með þessum hætti fljótlega. En ætti kannski að prófa þetta aftur.
Spurningunni hvað hugsa þessi ólíkindatól sem konur kallast er ég löngu hættur að reyna að svara.
Konur hugsa sig ekki einu sinni tvisvar um áður en þær hafna mér.
Gæti það haft eitthvað með það að gera að þær eru ekki vissar um kyn þitt?
Ég er kona, ég get verið mjög órökrétt á köflum.
Af hverju? Af því bara!
Ég er kona, ég get verið mjög órökrétt á köflum.
Af hverju? Af því bara!
Það þykir mér reyndar mjög rökrétt að þú sem kona sért órökrétt. Þannig er þetta nú í pottinn búið já seisei.
Dæsir mæðulega og gengur þungum skrefum niður af sviðinu
Vill einhver giska á hvað ég er að hugsa? Lítur með velþóknun á karlkyns gesti
Ég held að þú sértað reyna að hugsa upp afsökun fyrir að mæta ekki á árshátíð.
Rýnir í rúnir. Þú ert að hugsa um hvar þú eigir að nota nýja kjólinn þinn þar sem þú kemst ekki á Árshátíðina.
Eruð þjer kannski að hugsa um hvaða ágiskanir á hvað þjer sjeuð að hugsa um muni koma ? Starir þegjandi út í loftið, fullur efasemda um að þetta sje rjett
verður hugsi
var reyndar hugsi þegar, en heldur því áfram
Starir þegjandi út í loftið