Umtalast Sáuð þið að Tigra er að fara að halda útskriftarveislu, eigum við að safna í gjöf Ljómar upp
Stelst inn á þráðinn með leynd Verður illt í augunum af smáletruðu hvískri og slúðri
Voðalega hljóta Bagglýskir karlar að kunna vel á kvennfólk fyrst þeir hafa engar spurningar.
Mig langar að vita hvað karlmenn hugsa.
Hugsa þeir eitthvað?
Mig langar að vita hvað þessi Opruhþráður er að gera á háalvarlegri Vísindaakademíunni.
Hakuchi minn, ég bjóst nú við aðeins málefnalegra innleggi frá þér. Klórar sér í höfðinu
Þetta sannar að karlar eru frá Mars og konur eru frá Venus.
Kveikir í sjálfshjálparbókum byggðum á asnalegum dilkadráttum um meint hugarfar sitt hvors kynsins og Opruhþáttum á dvd.
Voðalega hljóta Bagglýskir karlar að kunna vel á kvenfólk fyrst þeir hafa engar spurningar.
Mig langar að vita hvað karlmenn hugsa.
Hugsa þeir eitthvað?
Þetta er auðvitað stórkostleg móðgun. Ekki þarf að lesa mörg innlegg eftir snilling eins og GíslaEiríkogHelga, til að sjá að hér eru karlmenn sem hugsa - og hugsa mikið.
Voðalega hljóta Bagglýskir karlar að kunna vel á kvenfólk fyrst þeir hafa engar spurningar.
Mig langar að vita hvað karlmenn hugsa.
Hugsa þeir eitthvað?
Kannski í sumum tilvikum um hvernig hægt sje að hafa skýrari hugmynd um hvað konur sjeu að hugsa Starir þegjandi út í loftið.
Já þetta datt mér í hug.
Vladimir, þú hefur bara samband ef þig vantar að fá túlkun á því hvað forsetafrúin er að hugsa.
Auðvitað hlýtur það að vera hávísindaleg spurning hvernig konur hugsa. Alveg eins hlýtur það að vera hávísindaleg spurning hvernig karlmenn hugsa. Ég gæti trúað því að þetta væri ein elsta vangavelta mannkyns.
Auðvitað hlýtur það að vera hávísindaleg spurning hvernig konur hugsa. Alveg eins hlýtur það að vera hávísindaleg spurning hvernig karlmenn hugsa. Ég gæti trúað því að þetta væri ein elsta vangavelta mannkyns.
Það er enginn vafi á því að spurningin út af fyrir sig getur verið vísindaleg. Það er svo annað mál hvort umræðurnar séu vísindalegar. Til að mynda gætum við alveg spurt sem vísindamenn hvort álfar, páskahérinn eða flóðhestar séu til. En það er ekki fyrr en við höldum því fram að svo sé án nokkurs rökstuðnings eða vísindalegra rannsókna sem það verður bara eintómt hjal.
Ég þakka þeim er lásu.
Ég vil bæta við orðinu AMEN við það sem Isak skrifaði hér að ofan.
Eftir hverju eruð þið þá að bíða? Ætlið þið kannski að reyna að halda því fram að það sé tilgangslaust að tala um það frá vísindalegu sjónarhorni hvað konur hugsa? Bíður spennt eftir innihaldsríkum umræðum karlkyns vísindamanna um efnið