Það er oft erfitt fyrir nýliða að feta sig um á hálli braut Gestapó, flestir nýliðar taka sig þó til og lesa og læra áður en þeir mæta af fullum krafti...
Fyrir þá sem vantar upplýsingar um Gestapó í hvelli, þá getur verið gott að hafa í huga eftirfarandi:
1- Stafsetning og málfar skiptir miklu máli, vanda sig.
2- Passa sig á að hafa í heiðri almennar umgengisreglur, aðgát skal höfð í nærveru sálar, orðlýti og níð ber að varast.
3- Gott er að kynna sig í upphafi, menn fá yfirleitt góðar móttökur hérna, sérstaklega ef menn hafa í heiðri ofangreind atriði.
4- Félagsrit skulu vera vönduð og vel hugsuð, léleg félagsrit fara illa með mannorðið, sjaldan skal nota orð annarra í félagsriti nema geta heimilda.
5- Gott er að nota skilaboðin ef nýliði er í vafa um eitthvað, flestir Heimavarnaliðar taka því vel ef leitað er til þeirra.
6- Gott er að spá aðeins í það hvar nýir þræðir eiga að birtast, kveðskapur á t.d. hvergi heima nema í kveðskapnum, frumsamið helst ekkert annað.
7- Fyrst ég er að tala um kveðskap, þá má benda á www.rimur.is í sambandi við reglur um kveðskap.
8- Aðalatriðið er þó að hafa gaman af því að vera hér, anda rólega ef einhver pirrar þig og sleppa þá bara að svara því, því hér er nóg af þráðum til að svara.
9- Já, ekki má gleyma að tvípunktar og svigi lokast og annað slíkt er illa séð hér, sem dæmi Glottir eins og fífl
Þá er það upptalið í bili.
Nú hef ég verið gestur hérna um nokkurt skeið en þó ekki sent neinn svona póst til að tilkynna komu mína. Ljómar upp
Takk. Ert þú líka Smábaggi?
Blessuð. Má ég samt benda þér á að þú ert til á skrá í hinum ýmsu félögum Gestapó t.d. Pirrandi félagsinns.
Sæl Pollýanna. Þú ert á góðri leið með að verða yndislegasti gestapóinn, sértu það ekki þegar.
Já komið þér blessaðar og sælar. Yndislegt að sjá yður. Vinsamlegast kippið yður eigi upp við andhverfu yðar, Smábagga, hann er krútt sem engum vill illt.