— GESTAPÓ —
Ljóð um fornan átrúnað íslenskan.
» Gestapó   » Kveðist á
GESTUR
 • LOKAР• 
Nýall 27/9/03 20:27

Æsir og Ásynjur

Komið sælir kæru jarðarbúar
kynnist betur okkar fornu sögu.
Trúarkúnstin trúarvilja kúgar
tærir hugar forðast regluþvögu.
Einráðir hópar afsprengi trúar
eineltu heiðna af ofstæki högu.

Lífverur Goða eru lifandi enn
langar aldir þróast Ása saga.
Þúsund árin mælt í gegnum menn
mörgu góðu haldið var til haga.
Batnar við Æsi sambandið senn
sannlega þurfum fjölmargt að laga.

Aldrei lokaðist Ásum landið
agnar götin þar og hér.
Treysti foldin tryggða bandið
trúleg bending þykir mér.
Eymdin fólk og flökkustandið
fluttu nöfnin kunnug þér.

Valkyrjur gistu Valhallar Sali
varlega Ásynjur aflinu flíka.
Líknuðu nokkra vopndauða vali
veittu af rausn er nutu slíka.
Virðingu fengu í valmanna tali
valfengnar konur atsæknar líka.

Óðinn er guða og manna mestur
margur er hans leyndarsvipur.
Hann ýmist þykir góður gestur
gjafmildur vitur sagnalipur.
Ella klórandi vargur verstur
válegur urrandi glefsandi gripur.

Traðir Óðinn þeytir átta hófa hrossi
heiðblátt sindur undan skeifum keyra.
Gandinn situr guðinn þó hann hossi
goðumlíkir þegnar nálgun heyra.
Sleipnir rennur Bifröst líkt og blossi
berast harðir skellir næmu eyra.

Ása Þór hinn mesti goða garpur
græskulaus Valhallar varnarliði.
Geithafra hélt er gernýtti sarpur
goðið skrýtna matar hafði siði
í bítið skemmti hafur skarpur
skapmiklu goði í einföldu sniði

Landinn goðið þoldi Þór
Þjónkun mikla hafði.
Í augum flestra afar stór
Einkum þá mjöllnir lafði.
Megingjarðir mögnun sór
Meir hann ekki barði.

Til orustu búinn okkar maður
Oddar engir á hann bitu.
Sjaldan glotti aldrei glaður
Goðin kátu á hann litu.
Þór minn sterki þinn er staður
Stríða frenju rista fitu

Um bakið magnar megingjörð
magnast gimheims krafti goðið.
Villtir jötnar í hamfara hjörð
Hugnast sjaldan mörgum boðið.
Í jötna Mjöllnir skárar skörð
Skaðar trölla um valinn troðið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 28/9/03 21:05

Í Ásgarði er kvennakvöld
kannski ekki móðins
stuttu seinna kemur köld
kerlingin hans Óðins.

Í Valhöll nötra himnahlið
er hleypur hún þar inni
"Hvar er Loki" kveður við
"kvennabósinn minni?"

Fenrisúlfur feitur er
og fullan hefur maga
hefur Loka í hendi sér...

...en það er önnur saga.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 10:34

Hans hinsta ósk var að sóttur yrði séra.
Sóttin myndi hann yfirhöndu bera.
"Heyrðu mig nú presta- gamli -poki.
Psalmunum hentu, minn guð er Loki."

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 29/9/03 12:35

Loki gamli lastavættur
liggja mátti tröllakyn
fékk úr bítum heimur hættur
Hel og Fenri, systkinin

Dr.Barbapabbi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 30/6/04 14:49

Ef Óðinn niður á Ísland liti.
Ætt´ann að berja fast í borðin.
Heimdallur er hálfviti
og helblá Valhöll orðin.

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: