Svo virðist sem Texi Everto hafi fundið upp einkennilegan vírus sem feitletrar allt sem kemur á eftir þeim innleggjum sem hann slengir honum í. Þessi þráður er stofnaður honum til höfuðs. Allar rannsóknir á þessu sviði eru velkomnar, sérstaklega rannsóknir sem miða að því að útrýma þessari óværu.
Fyrst mun ég reyna að endurskapa vírusinn.
Reynir að endurskapa vírusinn
.....
Hér er ég að athuga hvort vírusinn hafi verið endurskapaður rétt.
ÉG SKAL SVOLEIÐIS FEITLETRA ÞENNAN KOLGEGGJAÐA KÖNTRÍKYRJANDI KÚASMALA EF HANN SVO MIKIÐ SEM ÍHUGAR ÞAÐ AÐ BÍA AFTUR ÚT SPJALLIÐ!
Ég lenti í svipuðu vandamáli um daginn. Þá var ég að reyna að breyta eldra innleggi mínu og ætlaði að skáletra breytingarnar. Einhvur fjárinn gerðist á þá leið að allt sem kom á eftir skáletrun nr. 2 varð feitletrað. Þetta takmarkaðist þó við mitt eigið innlegg.
Þegar ég skoðaði „sourcinn“ nánar kom í ljós að eitt stykki <br> hafði umbreyst á þann veg að komið var bil á milli b og r í html-inu.
Mig er einmitt farið að gruna sterklega að nauðsynlegt sé að breyta innleggi til að skapa vírusinn. Ég er þó því miður litlu nær um hvernig það er gert, nákvæmlega.
ÉG SKAL SVOLEIÐIS FEITLETRA ÞENNAN KOLGEGGJAÐA KÖNTRÍKYRJANDI KÚASMALA EF HANN SVO MIKIÐ SEM ÍHUGAR ÞAÐ AÐ BÍA AFTUR ÚT SPJALLIÐ!
Hefur sig hægan og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Æi, en sniðugt að það skuli vera búið að lífga þennan þráð við.
Við vorum einmitt að ræða þessa stæla í Texa í kvöld.
Svo er bara að athuga hvort þetta virkar eitthvað.
Sem það virðist og ekki gera dæsir
Hmm... alveg sama hvað ég reyni.. það ruglast ekkert.
Kannski Enter hafi tekið fyrir þennan gjörning.
Já, þú segir það já.
xT
Ef fólk feitletrar mjög mikið, og ég er að velta þessu soldið fyrir mér, sérstaklega ef það eru klárir tölvumenn eins og við, fitnar það þá?
Já, ég held að sá sem er svona feitletrunarglaður gæti átt von á því á næstu misserum að bæta við sig kílóum á að feitletra svona mikið,
hvur veit,
Úlfamaðurinn,