Er þetta þín sök?!
Þetta fór ekki einu sinni fram hjá falsmiðlunum!
Vjer biðjumst afsökunar á að aðgerðir vorar (er vera áttu leynilegar) hafa víst verið örlítið of áberandi. Vjer erum að athuga hvort unnt sje að nota elipton til að eyða svartholinu í klósetti Skabba. Það eru góðar líkur á að það gangi en afleiðingarnar af því eru þannig að e.t.v. munum vjer eigi grípa til svo róttækra ráðstafana - hugsanlegt er að slík aðgerð myndi eyða jörðinni líka.
Eða er sá grunur vor að gestir hjer yrðu almennt ósáttir við slíkt annars ekki alveg örugglega rjettur ?
En það er semsagt möguleiki að þetta heppnist? Ljómar upp
Eða er sá grunur vor að gestir hjer yrðu almennt ósáttir við slíkt annars ekki alveg örugglega rjettur ?
Það versta við það er að Gestapó gæti ekki haldið áfram starfsemi sinni!
Þú verður að miða allar framkvæmdir þínar við hagsmuni Gestapó.
Er það rétt að Skabbi hafi sjálfur horfið í svartholið? Verðum við ekki að halda heim til hans með últrakóbaltómsjánna til þess að skanna svartholið í klósettinu hjá honum.
Hva? Gátuð þér ekki sökkt Vestmannaeyjum í leiðinni?
Þetta var nú auma aðgerðin.
Vestmannaeyjar eru nauðsynlegar á sinn hátt...
Vestmannaeyjar eru nauðsynlegar á sinn hátt...
Einmitt, þá þarf Árni Johnsen ekki að vera alltaf uppi á meginlandinu og við losnum Við Lúðvík Bergvinsson í nokkra mánuði á ári.
Hömm... eru ekki meiri líkur á að þeir festist vegna veðurfarslegra ástæðna útí Grímsey? Væri skárra að hafa þá þar.
Getur verið að þessar jarðhræringar eigi sér aðrar orsakir? Það kæmi mér ekki á óvart að hugsanlegur titringur innan ritstjórnar vegna komandi árshátíðar komi fram á skjálftamælum. Jafnvel gæti verið um að ræða titring vegna of tíðra fyrirspurna frá Smábagga. Starir þegjandi út í loftið
Skreppur til Vladívostok
Ég bið að heilsa fjölskyldu Vladimirs.
Þau voru ekki heima.. en ég kom í staðin með dagblað frá Vladívostok handa þér:
http://vn.vladnews.ru/
Les af athygli
Vladivostok virðist vera áhugaverður staður. Það eru meira að segja fljúgandi hundar þar!
Já.. ég held þetta hafi verið eitthvað sem Vlad var að reyna að rækta áður en hann flutti til Baggalúts.
Fljúgandi hundar? Mig vantar einmitt svoleiðis í seiðinn minn! Dregur risastórt fiðrildanet upp úr handtöskunni og fer á flughundaveiðar
Þetta verður alltaf áhugaverðara og áhugaverðara... Vladivostok þýðir eins og stendur hér "Herra" austursins á rússnesku. (Veit einhver betri þýðingu á "lord"?
Vlad er ekki forseti fyrir ekki neitt.
Herra er besta þýðingin á "Lord" tel ég víst.
En þýðir Vladimir þá ekki herra Jarðarinnar, þar sem mir þýðir Jörðin?
Mér sýnist þessar upplýsingar staðfesta það.
Forsetinn virðist sannarlega vera af merkum ættum.