Kærlega til hamingju og gaman að sjá að þú hefur ákveðið að vera hér áfram. Réttir Sæma fjaðrapenna úr Snæuglu og blek úr Mímisbrunni í tilefni dagsins
Til hamingju með heiðursgeststitilinn og skál ! Gæðir sjer á veitingunum og sýpur á fagurbláum drykk. Þetta er víst mun stærri áfangi en að ná 10000 innleggjum því eigi fylgir því nein nafnbót Starir þegjandi út í loftið.
Uss uss Drífa mín, þetta þurftirðu ekki að gera Brosir sínu breiðasta af gleði Fáðu þér nú eitthvað í gogginn og Vladimir, þakka þér kærlega fyrir, viltu ekki fleiri pönnukökur?
Nú rúmum fimm mánuðum eftir að ég stofnaði þennan fyrsta þráð minn er ég orðinn heiðursfélagi, ég vil þakka ritstjórn fyrir þennan heiður, takk kærlega.
Það er opið hús hjá mér fram eftir degi, boðið er upp á pönnukökur með rjóma, kleinur, flatkökur með hangikjeti og kaffi, kakó og djús. Verði ykkur að góðu elsku vinir og félagar!
Þiggur veitingar og notar tækifærið til að knúsa Sæma rækilega
Þeir eru nú nokkrir Sæmarnir í mínum frændgarði, ert þú kannski einn af þeim?
Þiggur veitingar og notar tækifærið til að knúsa Sæma rækilega
Þeir eru nú nokkrir Sæmarnir í mínum frændgarði, ert þú kannski einn af þeim?
Hver veit, hver veit, roðnar við knúsið ansi er nú heitt hérna, Fær sér ískalt djús
Uss uss Drífa mín, þetta þurftirðu ekki að gera Brosir sínu breiðasta af gleði Fáðu þér nú eitthvað í gogginn og Vladimir, þakka þér kærlega fyrir, viltu ekki fleiri pönnukökur?
Þú átt nú ekki minna skilið. Fær sér pönnsur og spjallar við gestina.
Eldar fleiri pönnukökur, steikir fleiri kleinur, smyr fleiri flatkökur og hellir upp á kaffi og kakó, blandar djús laumar sterkari vökva út í djúsinn fyrir þá sem vilja
Kyngir Voða er þetta allt gott hjá þér, Sæmi minn. Alltof langt síðan hér hefur verið almennileg föstudagsveisla með góðum veitingum. Fær sér fjórðung af flatköku
Til hamingju með áfangann Sæmi! Hamstrar veitingarnar
Nóg til elsku vinir, nóg til laumast inn í búr og nær í varabirgðir af smákökum
Veltur inná þráðinn Innilega til hamingju Sæmi Ræðst á veigarnar og spænir í sig rjómapönnukökunum, skolar þeim niður með steka djúsnum
Voðalega verðið þið fullornir fljótt, mér finnst bara smá tími síðan ég sá þig first lítinn fróðleiksfúsan snáða... Tekur djússopa og bara strax orðinn heiðurfélagi. Drekkur enn meiri djús eru kannski Don og Drífa líka ornir heiðursgestir?
Þakka þér Dr. Zoidberg, það er sannur heiður að fá svona góðan gest Hamast við að búa til meira af rjómapönnukökum og djús
Myndast hefur hrúga af veitingum og bak við hana leynist risastór marsipanterta
Jæja, verð að fara en endilega fáið ykkur meira, sjáumst eftir helgi kæru vinir, ef veitingarnar klárast þá er meira deig í ískápnum.
Veltur inná þráðinn Innilega til hamingju Sæmi Ræðst á veigarnar og spænir í sig rjómapönnukökunum, skolar þeim niður með steka djúsnum
Voðalega verðið þið fullornir fljótt, mér finnst bara smá tími síðan ég sá þig first lítinn fróðleiksfúsan snáða... Tekur djússopa og bara strax orðinn heiðurfélagi. Drekkur enn meiri djús eru kannski Don og Drífa líka ornir heiðursgestir?
Nei ekki ennþá, en það fer að styttast. Ræðst á marsipantertuna
Sér að veigarnar eru allar búnar Flott er, verði ykkur að góðu, við verðum að halda fleiri svona veislur.
Ég held eina um leið og ég verð heðursgestur.
Ég held eina um leið og ég verð heðursgestur.
Það styttist í það herra De Vito. Ljómar upp