Úrvalið var ekki mikið, tveir karlmenn, einn frumstæður prímati og þrjár konur. Líklega er best hjá mér að hafa samband við þennan Enter, er hann stjórnandi hérna?
Ekki valdi ég mér mynd úr myndasafninu....
Lang flestir velja sér mynd við hæfi og senda Enter.. sem smellir henni inn.
Þú getur sent Enter póst.. beðið um mynd af Sæmundi Fróða.
Úrvalið var ekki mikið, tveir karlmenn, einn frumstæður prímati og þrjár konur. Líklega er best hjá mér að hafa samband við þennan Enter, er hann stjórnandi hérna?
Já.. sendu bara einkaskilaboð.
Skrifar bara "Enter" í nafn
Því miður... engar myndir af Sæma þar.
Persónulega varð ég fyrir vonbrygðum með myndasafnið þegar ég valdi mér mynd.
Mér finnst þessi mynd reyndar æðisleg sem þú ert með..
Gæti ekki hugsað mér að hafa þig öðruvísi!
Hver er Enter? Enter er holdgervingur almættisinns á Netinu.
Ef þú kemst yfir mynd af Sæma fróða þarftu að láta Vlad vita - hann vantar tímavél til að nota við björgunaraðgerðir og ef þú kemst yfir mynd af Sæma þýðir það að þú átt tímavél.
Enginn Sæmi fannst við gúgglun... Fyrir utan styttuna. Þessi mynd er annars ágæt.
Allt er vænt sem vel er grænt. Ljómar upp
Takk fyrir móttökurnar, Dordingull hvort er betra að drekka mikið eða lítið, sýnist á því sem ég hef lesið að hér sé lítið um bindindismenn. Ákavíti hef ég ekki drukkið daglega, en ágætis drykkur sem svipar til hins íslenska brennivíns ef ég man rétt. Sá þegar ég var að skrá mig inn að ég verð að skrifa tíu sinnum til að fá mynd, hvar fær maður mynd? (áttunda skrifið mitt sýnist mér)
Lærðir þú ekkert þarna í Svartaskóg um árið? Hugsanlega ekki fengið að taka sjúkraprófin.........MIKIÐ........Og Ákavíti á ekkert skilt við brennivín! Að byrja með því að móðga Skabba er ekki gott.Vonum bara að hann sé að sofa úr sér og sjái þetta aldrei.
Mér finnst þessi mynd reyndar æðisleg sem þú ert með..
Sammála, ég vil endilega ekki að þú skiptir.
-
Það var ein helvíti góð mynd utan á einni bók sem einhver átti einhvertíman um Sæmund Fróða.
Tigra, það hljomar vel. Sendi Enter spurningu í skilaboðum um það.
Það hljóta að vera til einhverjar myndir af Sæmundi fróða í fornum handritum.
Ég sendi Enter nýlega mynd af mér og hún er komin inn. Takk Enter! Er þetta ekki fín mynd annars?
Þú ert virðulegur. Ég hef enn ekki lagt í að biðja um sérstaka mynd. Ætti kannski að skila Bronson og fara í "make-over". Láta Enter hafa aðeins fyrir mér. Hvað finnst ykkur?
Hún er í það minnsta skref í rétta átt. Þú ert miklu Sæmundarlegri svona.
Þú ert virðulegur. Ég hef enn ekki lagt í að biðja um sérstaka mynd. Ætti kannski að skila Bronson og fara í "make-over". Láta Enter hafa aðeins fyrir mér. Hvað finnst ykkur?
Nei, þú ert fínn eins og þú ert. Þú ert svo einbeittur á svip.
Þetta var svona bráðabirgðamynd úr safninu, hefur reyndar vanist ágætlega. Líka fáir sem hafa eins mikið "cool" og Bronson.
Nákvæmlega. Bronson tamdi svalið algerlega, eða réttara sagt skeggið hans (sjá hér: http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=61&n=131).
Reyndar er ótrúlegt hversu vel hann hélt kúlinu á þessari mynd án skeggsins, en þar er örugglega um leifar áhrifa skeggsins (sem hefur farið í frí, líklega á Hwang Jang Lee) á hann.