Veit ekki neitt um slíkt. Verðum bara að spyrja Hótelstjórann.
Trúi ekki öðru en að kripplingar og annar aumingjalýður sé þá á öðru farrými.
Alminnilegt fólk verður að fá að drekka og ryksuga í friði fyrir betlarahyski og hælsærissjúklingum.
Hvaða andskotans rugl er hér í gangi? Þetta er í annað skipti sem ég kem hingað í þeirri trú að krassandi messa hressi mig og veiti mér kraft fyriir daginn sem nú er rétt hafinn með tilkomu næturinnar.
Rökræður um raunveruleika er það sem ég heyri.
Hér þarf að þruma vel yfir villuráfandi krypplingum.
Þið forhertu fíknarbörn!
Opnið ritalinkassana og dragið fram bréfið samanbrotna
Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að lesa upp úr fyrsta Ritalinbréfi.
Við byrjum á fyrsta versi í fylgiseðli.
Þið lygarar sem hikið ekki við að ljúga að sjálfum Landlækni allskyns kvillum til þess eins að ráfa um í þoku hinnar himnesku vímu. Við yður vil ég segja. Orðið er ekki orðið að orðum fyrr en munnræpan rennur og orðin flæða fjarri öllu sem sannleika tengist .
Novarits sé með yður. AMFEN!
Þið hin sem þjáist af skapgerðarbrestum Helvítis, Narkolepsi, kvíða, þunglyndi, Touretts heilkenni og öðrum aukaverkunum andskotans.
Hlustið á Novarits! og orð hans.: Gangið á minum lyfjum og þér munuð ei villast af línu lyginnar
HALLELÚJA RÍTA LÍNA. AMFEN
Fær sér e-pillu og finnur kraft vímunnar magnast
Gjörið svo vel að rísa upp og krossa ykkur á örvandi og róandi.
Setjist!
Þið fláráðu fíknarbörn !
Vegir vímunnar eru órannsakaðir! Þeir vegir skulu kannaðir verða, en ekki bannaðir!
Óþokkar skulu ei verða dæmdir, nema glæpir verði sannaðir.
Dýrð sé Dexedríni !
Sáið fræjum hampsins hvar sem þeim verður niður komið og fyrr en varir munu heiladauðar hræður upp rísa í reykjarmekki Kannabis þess heilaga trés og afurðir sáningar yðar munu seljast á fagnaðar-markaði þeim er hinir gjörspilltu ráða og þeir útúrdópuðu þjóna.
Stekkur hæð sína og finnur sig knúinn til að syngja sálm
Ég kveiki í þér kæra jóna
Kannabis helga stuð
sjáið mig dæmdan dóna
dópaðan biðja guð
ég villtist oft af vegi
vímunnar, þá ég bað
nú hallar helvískum degi
á Hausa kveljandi stað.
Ljómar upp af heilagri vímu
HALLELÚJA ! Ó ÞIÐ ILLÞÝÐIS FÍKNARBÖRN !
Gangið áfram á glötunnar vegi AMFEN !
Bravó, bravisimó. Klapp, klapp. Opnar munninn og fær hið helga rítalín frá vímus og spíritus í altarisgöngu.
hum, hum á ekki að anomin sante patre mig. Eða er ég að messa hér.
Verður á
Kastar trúnni og fer út.
Í nafni skaparans takið trú yðar með þér héðan. Ég vil ekki sitja uppi með þína trú.