Hvur andskotinn! Hví í ósköpunum notuðuð þið ekki kvarkatætarann til að stöðujafna svartholið?
Stekkur til og togar í Gvend svo að allt sogist ekki niður í svartholið
Fylgist með hvernig þremenningarnir eru togaðir sífellt nær gini svartholsins og fyllist örvæntinguNei, Glúmur! Ekki yfirgefa mig!
Stekkur og togar í kókdósina, hinn aukni togkraftur virðist ætla að nægja skamma stund en fljótlega dregst öll halarófan enn nær svartholinu, Gvendur sokkinn upp að olnbogum og virðist vægast sagt skrýtinn
Sér mikinn hamagang og reynir að hjálpa
togar í Ormlaugu
Finnur hvernig ógarafl svartholsins virðist aukast
Fari það í fúlan pytt!!
Öll halarófan sogast niður svartholið
Heyrir skaðræðisöskur sem smjúga gegnum merg og bein - kemur hlaupandi inn til að hjálpa eins og sönnum kúreka sæmir Nei, ég trúi þessu ekki, ég er of seinn Snöktir karlmannlega En þau voru öll svo ung! Hví? HVÍ?!Brestur í óstöðvandi, en jafnframt karlmannlegan, grát
Heyrir upphrópanir inni á klósettinnu. Hleypur að klósettinu og sér halarófuna sogast inn.
Hvur þremillinn!
Svartholið er að stækka!
Hrifsar til sín kvarkatætarann og lætur vaða á svartholið til að hemja veldisvöxt.
RATATATATATATATATA..SGRLZZZZZ...RATATATATATATA.
Svartholið stöðvast en víddarsamfella myndast með skörun margra vídda. Allt í einu birtast vel vopnaðir gíraffar með apahendur og í miðaldabrynjum sem byrja síðan að ógna fólki á arabísku.
Skylmist við 5 gíraffa og skiptist á blótsyrðum við þá.
Vill einhver gjöra svo vel að reyna að totta Glúm og félaga upp úr svartholinu með kóbaltdrullusokkinum!
Ég held Gírarabönum í skefjum!
Reynir í örvinlan að gera eitthvað af gagni, reynir að kasta reipinu sínu til Glúms. Brennir sig á höndunum þegar svartholið slafrar í sig reipið eins og spagettí. Æh, hefði ég átt að nota kóbaltreipi? Æi, ég er ekkert flinkur við svona - æh, hvern er ég að blekkja? - Ég ER EKKERT ALVÖRU KÚREKI, ég keypti þennan hatt á Kanarí til að ganga í augun á stelpunum. Brestur í óstöðvandi, og hreint ekki neitt karlmannlegan, grát svo að meira a ðsegja gíröffunum bíður við
Kemur inn með drullusokkinn
Jæja, losum þessa stíflu!
Sparkar einum Gíraraba þannig að hann slengist aftur á bak og tekur tvo aðra með sér í fallinu.
Forðast atlögu eins gíraraba með 'fiðrildi flögrar af hestsrassi' aðferðinni, steypir sér í kollhnís nær einni löpp gírarabans, hleypur upp hana, stekkur af henni að hlið búks hans og sparkar af öllu afli í búkinn og spyrnir þannig af honum enn hærra í loftið. Fer í kollhnís í loftinu í átt að eina gírarabanum sem stendur og tekur stillir grip sitt á katanasverðinu með 'flæðandi vatn' gripinu.
Baaaanzzzaaaaiiii!
Ræðst að höfði gírarabans og klífur það í tvennt og sekkur alla leið niður háls hans uns búki er náð. Blóð spýtist út um allt.
Fyllist vonleysi Þetta er búið,vonlaust! ALLT BÚIÐ!!
Grípur um garnir sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um í Gíraraba blóðpolli, emjandi af gráti
Brókar einn af leðurdvergum Hakuchis
Eina leiðin til björgunar er að komast yfir 'exotic matter' til að búa til örlítið endurbætta útgáfu af sambyggðu tímavjelinni/ormagöngunum er vjer smíðuðum í fyrra, fara aftur í tímann og ná þeim gegnum ormagöngin áður en þau sogast ofaní svartholið.
Því miður er mjög erfitt að komast yfir 'exotic matter'. Auk þess er mikil hætta á allskyns misskilningi. Síðast er vjer höfðum samband við þann aðila er helst getur útvegað það báðum vjer um tvöfalt meira en síðast. Vegna þess að 'exotic matter' hefur bæði neikvætt rúmmál og neikvæðan massa misskildi viðkomandi pöntun vora og krafðist þess að fá til baka það sem vjer höfðum áður fengið hjá honum.
Eh, en Vlad... Hvað með vænan skammt af Ctrl-Z?
Nei!
Enga andskotans galdra á hávísindalegan þráð!
Íhugar að beita neitunarvaldi
Hvernig stendur á því að þú ert alltaf ógirtur Smábaggi?
Flissar
Eh, en Vlad... Hvað með vænan skammt af Ctrl-Z?
Hvað í svarthvítum svartþröstum er þetta Ctrl-Z ? Vjer höfum yfirleitt mestan áhuga á Ctrl-Alt-Del og þá sjer í lagi nú er gaman væri að geta endurræst alheiminn sökum þeirra skelfilegu atburða er hjer kunna að hafa gerst.
Eh, en Vlad... Hvað með vænan skammt af Ctrl-Z?
Hvað í svarthvítum svartþröstum er þetta Ctrl-Z ? Vjer höfum yfirleitt mestan áhuga á Ctrl-Alt-Del og þá sjer í lagi nú er gaman væri að geta endurræst alheiminn sökum þeirra skelfilegu atburða er hjer kunna að hafa gerst.
ctrl+Z er svokallað "Undo"