Hó... enn ringlaður, sest niður og fær sér Ákavíti
Sest niður og fær sér malt
Jæja, hvernig var?
Búinn! Bíður eftir aðstoð.
Ohhh... ertu að segja mér að það sé ekkert sérstakt þarna ofan í?
(Úúú... komin í 3000 innlegg... ég hlýt að vera fíkill...)
Grætur af gleði
Það hlaut að koma að því að einhver hugsaði upp lausn á þessu vandamáli. Spurningin sem við verðum að spyrja okkur að núna er sú hvort ákavítið hafi haft þessi áhrif á sjálfan skrumgleypinn. Gæti kannski verið að Skabbi hafi skynjað allt þetta ákavíti og beitt viljastyrknum ómeðvitað til þess að komast út. Ákavíti er ágætis hvati fyrir framförum af ýmsu tagi. Hugsanlega er unnt að brjóta fleiri náttúrulögmál með ákavíti, bættu með últra-kóbalt dufti, eðlilega. Ljómar upp
Rjett er hinsvegar að nefna að vjer höfum mikinn áhuga á skrumgleypi þessum geti hann eða leifar hans nýst sem tímavjel, sbr. þetta:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5756
Því spyrjum vjer mikilvægrar spurningar: Hvað virðist yður hafa liðið langur tími frá því þjer hurfuð í skrumgleypinn ? Fáeinar vikur, nokkrar mínútur eða kannski mörg, mörg ár ? Fölnar skyndilega upp og óttast að útlit Skabba hafi e.t.v. breyst til baka í hið hræðilega Tal-útlit
Nokkrar mínútur, í mesta lagi... Ákavítið dró mig síðan út... hið yndislega Últrakóbalts-Ákavíti fær sér sopa
Heldurðu að þú hafir ferðast út fyrir Gestapóið?
Erfitt að segja til um það, þar sem þetta tók svo skamma stund...
Erfitt að segja til um það, þar sem þetta tók svo skamma stund...
En urðuð þjer varir við Glúm og fleiri gesti er einnig soguðust þarna inn ?
Erfitt að segja til um það, þar sem þetta tók svo skamma stund...
En urðuð þjer varir við Glúm og fleiri gesti er einnig soguðust þarna inn ?
Jú, gott ef ég sá ekki Glúm þarna... afhverju hann kom ekki út við Ákavítið veit ég ekki...
Er Glúmur ekki góðtemplari?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Spurning með að henda hreinu Kóbalti í helv... gleypirinn?