En ef þjer voruð nægilega fullir til að týna þessu eru líkur á að þjer munið eigi eftir því. Og ef svo er hvernig í ósköpunum vitið þjer þá að þjer voruð fullir er þjer töpuðuð umræddum hlutum ef þjer munið eigi eftir því að hafa verið fullir er það gerðist ?
Eina svarið við þessum þversögnum í tilveru voffa er sú að hann er eldheitur vinstri græningi en ekki framsóknarmaður.
Ég komst einmitt að þeirri niðurstöðu ég væri framsóknarmaður einu sinni eftir að hafa lesið mörg innleggin hans voffa.
Er einhverjar nýjar frjettir að hafa af klósettmáli þessu ? Eigi höfum vjer Skabba sjeð í þræði þessum í nokkurn tíma og hvarflar að oss að hann kunni að hafa sogast ofan í svartholið líka ásamt klukkunum.
Þetta er stórmerkilegt!
Ég legg til að við skipuleggjum leiðangur sem muni rannsaka salerni Skabba. Byrjað yrði á að þefa eftir Ákavíti kringum klósettskálina, til að ákvarða hvort um óminnis hvarf hafi verið að ræða.
Ef þefurinn er lítill, (það verður að teljast gefið að einhver keimur af Ákavíti hafi gegnsýrt alla íbúðina) þá má líklega með nokkurri vissu draga þá ályktun að um sé að ræða illskytt svarthol sem tekið hafi sér bólfestu í saurgleypinum hjá Skabba. (Hér er reyndar kjörið tækifæri fyrir Skabba að sækja um niðurfellingu holræsagjalds.)
Það sem er mikilvægt í þessu samhengi er að ef um svarthol er að ræða má vel vera að hér sé komin leið fyrir Sn0rkinn til að ferðast út fyrir Gestapó. Ljómar upp
Þetta krefst tafarlausrar athugunar! Hvar er Smábaggi annars, það er fyrir öllu að hann komi með - hann er jú líklegast eini gestapóinn sem getur hæglega komist að svartholinu.
Birtist augnablik við hliðina á klósettinu ...hvað gerðist? Sogast inn í svartholið aftur ... hjááááállllp
Stekkur á eftir Skabba
Óóónei! Aldeilis ekki!
Togar í Skabba
Skabbi skrumari, viltu hunskast hingað upp aftur!
Togar í skottið á Furðuveru
Ái! Skabbi! Drullastu hingað upp!
sér hvar Skabbi sogast niður úr klónum á Furðuveru
Andskotinn! Nú er nóg komið!
Dýfir sér ofan í klósettið
Vííííííííííí...
Jæja, þá erum við búin að bíða nógu lengi eftir því að Skabbi og félagar birtist aftur.
Blaðar í handbók Snorksins, bendir út og suður
Þetta fer að koma, ef mér skjátlast ekki.
Bláar agnir koma út úr börkunum þremur á ógnarhraða og skella saman í miðju klósettinu
Aha!
Ljósin dofna og veggir og annað lauslegt ganga í bylgjum, hár viðstaddra gránar og öðlast aftur lit til skiptis, viðstaddir eldast sýnilega og yngjast til skiptis
allt fellur í ljúfa löð og skyndilega virðist aðdráttarafl klósettsins horfið[/a]
[s]Klórar sér á höfðinu
Þetta átti að virka! Af hverju kemur enginn út? Er matartími eða eitthvað hjá þeim? Ansvítans geimtími. Of margar spurningar, svo lítill tími.
Gengur hægt og rólega út af sviðinu og hallar á eftir sér, veitir því enga athygli að handleggur teygir sig upp úr klósettinu
Það ætlar enginn að reyna þetta. Dregur kassa af ákavíti að Skrumgleyparanum og byrjar að hella últrakóbalts-ákavíti í klósettskálina, fruss og læti heyrast og svartholið þenst út Úff eins gott að forða sig. Hleypur í burtu og rétt sleppur við sog svartholsins
Sjitt.
Hleypur í burtu
Birtist í smá stund, hverfur aftur og svartholið virðist ætla að lokast, skýst síðan út úr skrumgleypnum hvaaaaaaaaaaaaaaaaaaaað gerðist byrjar að ráfa um Gestapó ringlaður
Hæ.
Veifar