— GESTAPÓ —
Klósett
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
        1, 2, 3, 4  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/5/05 18:15

En ef þjer voruð nægilega fullir til að týna þessu eru líkur á að þjer munið eigi eftir því. Og ef svo er hvernig í ósköpunum vitið þjer þá að þjer voruð fullir er þjer töpuðuð umræddum hlutum ef þjer munið eigi eftir því að hafa verið fullir er það gerðist ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 4/5/05 18:21

Eina svarið við þessum þversögnum í tilveru voffa er sú að hann er eldheitur vinstri græningi en ekki framsóknarmaður.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 4/5/05 18:44

Ég komst einmitt að þeirri niðurstöðu ég væri framsóknarmaður einu sinni eftir að hafa lesið mörg innleggin hans voffa.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/5/05 11:55

Er einhverjar nýjar frjettir að hafa af klósettmáli þessu ? Eigi höfum vjer Skabba sjeð í þræði þessum í nokkurn tíma og hvarflar að oss að hann kunni að hafa sogast ofan í svartholið líka ásamt klukkunum.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 6/5/05 15:53

Þetta er stórmerkilegt!
Ég legg til að við skipuleggjum leiðangur sem muni rannsaka salerni Skabba. Byrjað yrði á að þefa eftir Ákavíti kringum klósettskálina, til að ákvarða hvort um óminnis hvarf hafi verið að ræða.
Ef þefurinn er lítill, (það verður að teljast gefið að einhver keimur af Ákavíti hafi gegnsýrt alla íbúðina) þá má líklega með nokkurri vissu draga þá ályktun að um sé að ræða illskytt svarthol sem tekið hafi sér bólfestu í saurgleypinum hjá Skabba. (Hér er reyndar kjörið tækifæri fyrir Skabba að sækja um niðurfellingu holræsagjalds.)
Það sem er mikilvægt í þessu samhengi er að ef um svarthol er að ræða má vel vera að hér sé komin leið fyrir Sn0rkinn til að ferðast út fyrir Gestapó. ‹Ljómar upp›
Þetta krefst tafarlausrar athugunar! Hvar er Smábaggi annars, það er fyrir öllu að hann komi með - hann er jú líklegast eini gestapóinn sem getur hæglega komist að svartholinu.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 11/5/05 19:57

Þig vantar stallaklósett. Handhægt og þægilegt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 17/5/05 17:07

‹Birtist augnablik við hliðina á klósettinu› ...hvað gerðist? ‹Sogast inn í svartholið aftur› ... hjááááállllp

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 17/5/05 17:08

‹Stekkur á eftir Skabba›
Óóónei! Aldeilis ekki!
‹Togar í Skabba›

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 17/5/05 17:13

Skabbi skrumari, viltu hunskast hingað upp aftur!

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 17/5/05 18:21

‹Togar í skottið á Furðuveru›

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 17/5/05 18:24

Ái! Skabbi! Drullastu hingað upp!

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 19/5/05 13:04

‹sér hvar Skabbi sogast niður úr klónum á Furðuveru›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 19/5/05 13:06

Andskotinn! Nú er nóg komið!
‹Dýfir sér ofan í klósettið›
Vííííííííííí...

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlíus prófeti 19/5/05 16:50

Jæja, þá erum við búin að bíða nógu lengi eftir því að Skabbi og félagar birtist aftur.
‹Blaðar í handbók Snorksins, bendir út og suður›
Þetta fer að koma, ef mér skjátlast ekki.
‹Bláar agnir koma út úr börkunum þremur á ógnarhraða og skella saman í miðju klósettinu›
Aha!
‹Ljósin dofna og veggir og annað lauslegt ganga í bylgjum, hár viðstaddra gránar og öðlast aftur lit til skiptis, viðstaddir eldast sýnilega og yngjast til skiptis›

‹allt fellur í ljúfa löð og skyndilega virðist aðdráttarafl klósettsins horfið[/a]

[s]Klórar sér á höfðinu›

Þetta átti að virka! Af hverju kemur enginn út? Er matartími eða eitthvað hjá þeim? Ansvítans geimtími. Of margar spurningar, svo lítill tími.

‹Gengur hægt og rólega út af sviðinu og hallar á eftir sér, veitir því enga athygli að handleggur teygir sig upp úr klósettinu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 1/6/05 09:45

Það ætlar enginn að reyna þetta. ‹Dregur kassa af ákavíti að Skrumgleyparanum og byrjar að hella últrakóbalts-ákavíti í klósettskálina, fruss og læti heyrast og svartholið þenst út › Úff eins gott að forða sig. ‹Hleypur í burtu og rétt sleppur við sog svartholsins›

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 1/6/05 09:46

Sjitt.
‹Hleypur í burtu›

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 1/6/05 09:48

‹Birtist í smá stund, hverfur aftur og svartholið virðist ætla að lokast, skýst síðan út úr skrumgleypnum› hvaaaaaaaaaaaaaaaaaaaað gerðist ‹byrjar að ráfa um Gestapó ringlaður›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 1/6/05 09:49

Hæ.
‹Veifar›

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
        1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: