Nei, heyrðu...er þetta kannske Hinn hæfileikaríki herra Ripleifur?
Nei. Þá mynd hef ég ekki heyrt um. Ég held að fleiri hafi heyrt um mína mynd, þó gæti mér skjöplast.
Myndin hét víst bara She-Devil (http://www.imdb.com/title/tt0098309/), byggð á sjónvarpsþáttunum "The Life and Loves of a She-Devil".

Sem voru aftur byggðir á bókinni eftir Fay Weldon.
Nei, heyrðu...er þetta kannske Hinn hæfileikaríki herra Ripleifur?
Mikið rétt!
Þú mátt núna.
Hlæjið. Grátið. Deilið buxunum.
Er um að ræða svokallaða "gamanmynd"?
Er um að ræða unglingadramað Systralag buxnanna sem ferðast?
Dýragarðalendir?
(Zoolander)
Anna hefur þetta auðvitað.
Persónulega finnst mér teiklínan toppa myndina sjálfa.
Ja hérna hér, það var þá myndin til að vinna þetta á! Það vill svo skemmtilega til að ég rakst á Gallabuxnaferðalagastelpuklúbbinn á sjónvarpsstöðvaflakki um daginn svo hún var ofarlega í huganum þegar ég sá línuna. Ræskir sig örlítið vandræðalega
En jæja, áfram með smérið, nægum tíma hefur verið sóað. Hér kemur teiklína annarrar myndar sem ég rakst á á sjónvarpsflandri nýlega:
Stórar löggur. Lítill bær. Ofbeldi í hófi.
Hér dettur mér helst í hug Hot Fuzz.
Þetta var nefnilega Hot Fuzz, gott að þér datt hún í hug!
Jei!
Merkilegt hvað maður dettur oft á rétt svar í þessum leik.
En hér er næsta:
Stundum þarftu að villast til að komast aftur heim
Skiptandi um reynar?
Neibb.
Nei.
Myndin er yngri en gamla Lísa í Undralandi, en eldri en sú nýja. Glottir eins og fífl
En, hún er líka frá svipuðum tíma og Reinaskiptin.
það er ýldulykt á þessum þræði!
má ekki opna glugga og lauma inn vísbendingu í leiðinni?