"Við höfum með aðstoð stjörnukortsins náð að reikna út óbjagaðan fjármeitil á væntu kúgildi hlutabréfaverðferils Hf. Eimskipafjelags Íslands. Eða eitthvað." sagði Dollí sigri hrósandi og sýndi Wilhelm og Derrick útreikninginn, en þeir höfðu þá staðið upp.
"Dollí þó " tautaði Bambi og horfði ringlaður á hana, "af hverju gerirðu mér þetta?"
"Afar athyglisvert" tautaði Derrick, en áttaði sig undir eins að þessi útreikningur væri vitagagnslaus, enda hafði ekki verið tekið tillit til stöðu tunglsins í Fiskum á 1. ársfjórðungi rekstrarársins. Svo var á tveimur stöðum plústölur þótt mínus hefði verið nær lagi.
"Tveir plúsar gera ekki mínus" sagði Derrick spekingslegur, "og tveir mínusar gera ekki plús" stundi Fulder, "og tvö rangindi, gera ekki eitt rétt", sagði Derrick og
"þú Wilhelm ert handtekinn fyrir árás á alríkislögreglumann og verður að koma með mér niður á lögreglustöð. Fulder vesalingurinn, hann þarf hins vegar að fara á spítala." Hann greip í öxl Wilhelms
"Hægan Derrick" heyrðist skyndilega, það var Paulus sem hafði laumast aftan að þeim, ásamt Adolfi, "ekki eru öll kurl komin til grafar,
Paulus hélt þéttingsfast um Fender Stratocasterinn meðan Adolf mundaði dragspilið
. Nú var Derrick nóg boðið, "eruð þið að reyna að gera mig að fífli, auma rokkstjarna og asnalega örverpi" sagði Derrick með þjósti, "hér hefur verið framinn glæpur og ég læt ekki
einhverja annarsflokks menn draga mig á asnaeyrum eða öðrum dýralíkamspörtum. Nei, þennan dag munu menn muna sem daginn sem
við höfum undir höndum sönnunargögn
". "Hvaða glæpur ??" stundi Mox, "Vjer höfum því miður gleymt upphaflegu erindi voru hjer sökum þess að tíma vorum hefur hjer verið sóað í byssuleiki og aðra vitleysu"
. "Það er auðséð Mox, að þig mæðir blóðmissir" sagði Derrick sigri hrósandi. "Dollí hefur neitað að sverja foringjanum hollustueiða og skal því í Púlagið, Wilhelm hefur sært þig skotsári og skal því niður á lögreglustöð, og ég... ég ... ég hef villt á mér heimildir". Svo hélt hann áfram
"Það var í raun enginn glæpur sem við vissum um í upphafi, en nú hefur verið framinn byssuglæpur af verstu sort" sagði Derrick íbygginn, "afturámóti vorum við á keyrslu hérna framhjá og sáum þá Dollí dauðadrukkna hér fyrir utan".
Við ákváðum að grípa tækifærið enda hefur okkur Mox gengið illa í kvennamálum upp á síðkastið, við vorum jafnvel farnir að lýta hvorn annan hýru auga, en
annað en að fara inn í skápinn aftur. Þið eruð hér með öll handtekin", sagði hann kotroskinn og eitt augnablik lokaði hann augunum, en það var var reginskyssa því að
nú hafði Wilhelm séð í gengum hann og áttað sig á hvað hann var í raun og veru.
Derrick var í raun og veru engin annar en hinn víðfrægi fjármálaspekingur og kaupsýslumaður Warren Buffet sem ætlaði að afla sér innherja-upplýsinga á heimili Wilhelms og hafði í því skyni haldið ótæpilega áfengi að Dollý ræflinum.