— GESTAPÓ —
Eymdarlíf auðkýfinga
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 13:13

fullkomna lyktina með því að nota hvalshræ í stað sels og páfa í stað kardínála. "Merkið tryggir gæðin" hugsaði hann, enda var miklu öruggara að nota háheilagan páfann heldur en einhverja kardínáladulu sem var kannski bara rétt hálfvolgur í trúnni hvort sem var.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 13:17

"Hvaða mók er þetta á þér", sagði Derrick við Wilhelm, "þú ert búinn að sitja og glotta í hátt í mínútu, maður fer að halda að þú hafir eitthvað óhreint í pokahorninu".

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 13:22

"Óhreint og ekki óhreint" tautað Wilhelm og reis upp. "Það er margt óhreint á sveimi í heimi hér" tautaði hann svo og hló með sjálfum sér. En lögreglumönnunum var ekki skemmt

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 13:34

, það var ekki nóg með að Dollý hefði verið með uppsteit í heimahúsi Hermanns, heldur var líkt og Wilhelm væri nokkuð sama og engu líkara en hann væri feginn ef Dollý yrði rutt úr vegi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 13:50

"Það mætti segja mér, herra Wilhelm, að þér mynduð ekki gráta það þótt Dollí litlu yrði ekki fleiri ævidaga auðið" sagði Derrick og kipraði augun svo augnapokarnir, aðalsmerki Derrick-ættarinnar, svo til földu vanþóknun hans.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 13:56

Wilhelm byrjaði að titra af reiði og undrun, var Derrick búinn að átta sig á þessu eða var hann að reyna að veiða eitthvað upp úr honum. Wilhelm reyndi að stilla sig og sagði hrjúfri röddu:

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 14:21

"Farið hefur fé betra". "Æ" hugsaði hann, "þetta gæti hugsanlega misskilist".

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 29/9/03 14:25

"Vjer töpuðum smá fje á fjárfestingum í OZ" bætti hann við

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 14:42

, en allt kom fyrir ekki. "Enginn blekkir alríkislögregluna" sagði Fulder og stóð snögglega upp. Derrick reis einnig upp og benti ásakandi á Wilhelm sem

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 14:53

var að bæta ákavíti í glasið, með fálmkendum og krampakendum hreyfingum. "Ertu að ásaka mig um eitthvað glyrnan þín", sagði Wilhelm með þjósti

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 15:19

og greip til byssunnar sem hann geymdi í vinstri erminni. "Varaðu þig Derrick minn góður" gargaði Fulder, en of seint

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 15:34

, Wilhelm var búinn að hleypa af skoti en foringjahollusta Fulders var slík að hann stökk fyrir skotið, þannig að það hæfði hægri öxl hans.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 15:57

Derrick stökk á Wilhelm sem köttur væri og greip um hendina sem hélt á byssunni. "Gefstu upp?" spurði hann. "Aldrei" svaraði Wilhelm og beit í hönd Derricks. Í sama vetfangi kom þar að

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 16:02

Bambi og Dollí og héldu þau á stjörnukort á milli sín. "Hættið þessu nú þegar", sagði Dollí og

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 16:06

rak út úr sér tunguna. Bæði Wilhelm og Derrick urðu svo undrandi á þessu að

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 16:13

þeir hættu samstundis að berjast. "Hvað ertu með þarna ljúfan" sagði Wilhelm með mjúkri röddu, "Segðu ekki orð Dollí" sagði Bambi með þjósti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/9/03 16:26

"Meee" svaraði Dollí. "Munið eftir Mox, honum blæðir ógurlega"

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/9/03 16:31

"þetta er í lagi" sagði Mox og var við að líða út af, "en hvað með ykkur, hvað eruð þið að gera með þetta stjörnukort?"

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: