"Eiginkona þín var uppvís að hræðilegu atviki á sveitasetri Hermanns, fyrrum vinnufélaga þíns" sagði Derrick og barðist við að fella ei tár, "hún
nei ég get þetta ekki Brestur í óstöðvandi grát Mox þú verður að segja Wilhelm frá þessu
. "Hún neitaði að sverja vorum ástkæra leiðtoga, forseta og föður hollustu svo að vjer neyðumst líklega til að handtaka hana fyrir að grafa undan öryggi ríkisins
. "En þá getur hún þurft að fara í Púlagið" sagði Wilhelm og fölnaði upp. Svitinn spratt fram á ennið, enda minntist hann með hryllingi
bangsa til að ylja sér á köldum og dimmum vetrarnóttum. Einnig rifjaðist upp fyrir honum réttarferðirnar sem hann fór í með föður sínum er hann var einungis nokkurra vetra gamall
Wilhelm sá að nú varð að taka á málum af festu. Ef Dollý væri að skipta sér af verðmyndun í Eimskipafjelaginu mætti búast við afskiptum Fjármáeftirlitsins
. Það væri þá ekki í fyrsta skipti sem Wilhelm kæmist í kast við lögin, því þegar hann og Hermann voru á ferðalagi í Mósambík, höfðu þeir
ítrekað orðið uppvísir að því að reyna að selja útrunna strætómiða frá SVR sem íslensk stríðsskuldabréf. Aðeins eftir að hafa setið í fangelsi í
tvö ár innan um morðingja og verðbréfasala, sem að Wilhelm áttaði sig á því hvert skildi stefna í lífinu, hann skyldi verða
einræðisherra yfir öllum heiminum
. En enn sem komið var var hann aðeins verðbréfasali. Honum hafði að vísu safnast allnokuð fé, en þó átti hann nokkuð langt í að ná yfirráðum yfir heiminum. Hann batt þó þónokkrar vonir við verkefni sem hann hafði hrundið af stokkunum fyrir stuttu síðan
. Hann hafði keypt veikgeðja vísindamann til að hjálpa sér við að þróa forláta vél. Vél sem gæti
sent frá sér svo vonda lykt að
hver sá sem andaði því að sér væri á valdi þeirra. Það gekk þó frekara illa að þróa þessa vél, en nú nýverið hafði þeim tekist að einangra frekar óhuggulega lykt úr
ánamöðkum, ársgömlu selshræi, úldnum fiskhausum og kaþólskum kardinála.
Nú var því aðalspurningin, hvar þeir fengju nægilega mikið magn af kardinálum. Wilhelm ætlaði ekki að láta það stoppa sig, heldur