Samkvæmt mínum niðurstöðum þá eru strumpar illkynja. Gerðir voru teiknimyndaþættir um þá svo að þegar við öll ólumst upp, þá trúðum við því að þeir væru bara skáldskapur. Þeir eru hins vegar raunverulegir, hættulegir og með hræðilegan fatasmekk.
Alveg er þetta dæmigert fyrir þessa feminista. Um leið og einhver fer að hegða sér eins og asni er hann um leið stimplaður sem karlmaður.
Skemmtilega að orði komistGrípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Án nokkurs efa var það eggið.
Hver verpti því þá? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Var það ekki Eggert?
Ehemm...
Maður þyrfti að leita aftur til þeirra tíma er fyrsta dýrið tók upp á því að skríða á land til að svara þessari spurningu. Samt er það varla hægt. Fuglar þróuðust úr skriðdýrum, og hænan þróaðist úr þeim fuglum. Það þarf að pæla allt of mikið í þessu og ég bara nenni því ekki... en bara svona sem skammtíma svar þá segi ég hænan.
Já auðvitað var það hænan. Og hún kom utan úr geimnum. Alveg satt. Ef Vladimir getur einhvern tímann komið þessari tímavél til að virka þá getur hann sannað það!
Var það ekki Eggert?
NEI
Hins vegar er hægt að líta á það þannig að ef við höfum hænu og eitt af hennar eggjum, þá verpti hænan egginu þannig að hún kom á undan.
Hinsvegar skiptir engu máli hver verpti egginu sem sú hæna kom úr.
Hænan hefur ekki getað komið úr egginu sem hún sjálf verpti.
...savvy?
Hver verpti því þá? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Nú, einhver risaeðlan, auðvitað!Ljómar upp
Eggið og hænu-umræðan hefur farið fram hér á Gestapó allavega fimm sinnum... leiðist
Finnst yður eigi skemmtilegt að rifja upp kynnin á gömlum umræðuefnum?
Egg, hæna, Smábaggi. Ekkert getur hafa verið fyrst. Hvernig það má vera nenni ég ekki að skýra út
Veit ekki af hverju, það er svona bara bara, af því bara
Finnst yður eigi skemmtilegt að rifja upp kynnin á gömlum umræðuefnum?
Ekki þegar svarið er augljóst... Eggið kom á undan... eitthvert kvikindi verpti stökkbreyttu eggi sem útungaðist yfir í hænu...
Vil bara endurtaka fyrri ummæli mín um Dúluna okkar.
Pollýanna mælti:
Ég skil ekki af hverju Smábaggi er að þessum leiðindum.
dordingull 20/05/05 - 4:34
Það er ekki von að þú og aðrir sem telja framkomu hans vera leiðindi skilji að hann er ekki með leiðindi. Þetta er hans hlutverk, hann fæddist svona og má ekki breytast. Án Smábagga væri GESTAPÓ líkast setustofu fyrir kultiveraðar smjörkerlingar. Þessi fábjáni, fíBl og apaköttu, Æ!
Verður að vera.
Nú hef ég með stuttu millibili og á þremur þráðum hent skít í Smábagga án þess að fá svo mikið sem þakkir fyrir.
Er hugsanlegt að elsku drengurinn okkar, meistari húmorsins og strumpanna sé lasin eða farinn í frí?
Allavega er þetta kynlegt.
Ef einhver er ekki af einhverju kyni er hægt að segja að hann sé kynlaus í sömu merkingu og sá sem er hvorki karl né kona, þ.e.hefur ekkert kyn?
kær kveðja,
Úlfamaðurinn,