Nafnið Smábaggi er karlkyns. Þarf ekki að athuga það nánar? Ef um kynlausan karakter væri að ræða þætti mér persónulega réttara að nota nafn sem væri hvorugkyns. Ég held að með tilliti til þess hversu Smábaggi lætur sig málfræði varða, þurfi að skoða þetta alveg ofan í kjölinn.
Þá mæli ég með slettunni Smábögg.
Ég álykta sem svo að Smábaggi sé kona sem býr í Garðabæ eða Hafnarfirði og er á milli fertugs og fimmtugs.
Sko.. strumpar eru jú kynlausir ekki satt?
Hvernig var þetta í myndunum.. bjuggu fleiri hundruðir saman.. allir nánast eins.. eða allavega af sama kyni.. þangað til galdrakall, sem ályktaði að þetta væru allt karlkynsstrumpar.. bjó til svokallaðan kvenkyns strump.. en hann hafði þetta auðvitað í líki konu og hafði fyrirmyndina mennskar konur.. en þvílíkt fyrirbæri höfðu strumpar aldrei séð fyrr.. þannig að ég reikna með að þeir séu ekki bara kynlausir, heldur ekki heldur með kynfæri.
Kynfæralausir? Verða þeir þá til við knappskot eða einhvern fjandann? Skríða þeir kannski upp úr holum í jörðinni? Klórar sér í höfðinu
Ég er búinn að bíða í ofvæni eftir því hver af ritstjórn yrði fyrstu að sjá orðið Lesbía... gefur Enter Ákavíti
Er það orð á bannlista?
Ekki er hægt að segja að beinlínis sé um bannorð að ræða, en þar sem hugtakið er varasamt í meðförum, þá er bráðnauðsynlegt að ritstjórnin fylgist vandlega með því hvernig farið er það hér á síðum Gestapó. Í þessu tilfelli bendir Enter réttlega á að þar sem það var dúllan Smábaggi sem mælti þetta orð í þessu tiltekna tilfelli, þá er ekki ástæða til ritskoðunar eða annarrar ívilnunar að svo stöddu.
Það er nefnilega þannig að það eru rukkuð stefgjöld af notkun L orðsins og því ber að veita notkun þess strangt aðhald. Kynlausir eru þó undanþegnir gjöldunum og það gæti verið skíringin á óvæntri blíðmennsku Enters.
Sko.. strumpar eru jú kynlausir ekki satt?
Hvernig var þetta í myndunum.. bjuggu fleiri hundruðir saman.. allir nánast eins.. eða allavega af sama kyni.. þangað til galdrakall, sem ályktaði að þetta væru allt karlkynsstrumpar.. bjó til svokallaðan kvenkyns strump.. en hann hafði þetta auðvitað í líki konu og hafði fyrirmyndina mennskar konur.. en þvílíkt fyrirbæri höfðu strumpar aldrei séð fyrr.. þannig að ég reikna með að þeir séu ekki bara kynlausir, heldur ekki heldur með kynfæri.
Hægan nú. Skapaði Kjartan galdrakall Strympu?
Hvert þó í strumpandi. Þetta vissi ég ekki.
Þetta þarf að rannsaka nánar.
Sekkur sér í strumpafræði.
Þetta eiga nú allir að vita.
En þó að Kjartan hafi búið hana til var það yfirstrumpur sem gaf henni "extreme makeover" og opnaði þar með flóðgátt að vondu raunveruleikasjónvarpi.
Um þetta má lesa hér:
http://bluebuddies.com/help/smurfette_created_by_gargamel.htm
Æ, ég var aldrei mikill strumpasérfræðingur, þó ég hafi lesið nokkrar bækur og séð þættina.
Getur ekki verið að strumparnir séu tvíkynja?
Ég er nokkuð viss um að Smábaggi er karlmaður, mér finnst hann a.m.k. hafa karlmannlega framgöngu hér á lútnum.Starir þegjandi út í loftið Þegar hann fer sem mest í taugarnar á mér er ég alveg viss.
Alveg er þetta dæmigert fyrir þessa feminista. Um leið og einhver fer að hegða sér eins og asni er hann um leið stimplaður sem karlmaður.
Sem eru náttúrulega óafsakanlegir og særandi fordómar í garð karlkyns.
Starir þegjandi út í loftið og flautar sakleysislega