— GESTAPÓ —
Kynleysi Smábagga
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 23/4/05 09:29

Nafnið Smábaggi er karlkyns. Þarf ekki að athuga það nánar? Ef um kynlausan karakter væri að ræða þætti mér persónulega réttara að nota nafn sem væri hvorugkyns. Ég held að með tilliti til þess hversu Smábaggi lætur sig málfræði varða, þurfi að skoða þetta alveg ofan í kjölinn.

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 23/4/05 12:52

Þá mæli ég með slettunni Smábögg.

Í sjálfskipaðri útlegð frá skerinu um óákveðinn tíma.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 23/4/05 13:06

Neinei, Smábaggl.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 23/4/05 13:15

Ég álykta sem svo að Smábaggi sé kona sem býr í Garðabæ eða Hafnarfirði og er á milli fertugs og fimmtugs.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 23/4/05 13:58

Tigra mælti:

Sko.. strumpar eru jú kynlausir ekki satt?
Hvernig var þetta í myndunum.. bjuggu fleiri hundruðir saman.. allir nánast eins.. eða allavega af sama kyni.. þangað til galdrakall, sem ályktaði að þetta væru allt karlkynsstrumpar.. bjó til svokallaðan kvenkyns strump.. en hann hafði þetta auðvitað í líki konu og hafði fyrirmyndina mennskar konur.. en þvílíkt fyrirbæri höfðu strumpar aldrei séð fyrr.. þannig að ég reikna með að þeir séu ekki bara kynlausir, heldur ekki heldur með kynfæri.

Kynfæralausir? Verða þeir þá til við knappskot eða einhvern fjandann? Skríða þeir kannski upp úr holum í jörðinni? ‹Klórar sér í höfðinu›

Sönnun lokið.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 23/4/05 18:03

Lesbía kannski?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 25/4/05 10:20

HVER SAGÐI...

Ó varst það bara þú Dúlli minn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 25/4/05 11:56

Ég er búinn að bíða í ofvæni eftir því hver af ritstjórn yrði fyrstu að sjá orðið Lesbía... ‹gefur Enter Ákavíti›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 25/4/05 11:57

Er það orð á bannlista?

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/05 11:58

Lesbíur eru grafalvarlegt mál.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 25/4/05 12:01

Ekki er hægt að segja að beinlínis sé um bannorð að ræða, en þar sem hugtakið er varasamt í meðförum, þá er bráðnauðsynlegt að ritstjórnin fylgist vandlega með því hvernig farið er það hér á síðum Gestapó. Í þessu tilfelli bendir Enter réttlega á að þar sem það var dúllan Smábaggi sem mælti þetta orð í þessu tiltekna tilfelli, þá er ekki ástæða til ritskoðunar eða annarrar ívilnunar að svo stöddu.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gvendur Skrítni 25/4/05 14:36

Það er nefnilega þannig að það eru rukkuð stefgjöld af notkun L orðsins og því ber að veita notkun þess strangt aðhald. Kynlausir eru þó undanþegnir gjöldunum og það gæti verið skíringin á óvæntri blíðmennsku Enters.

~~ ÞETTA SVÆÐI TIL LEIGU ~~ •  • X - Gvendur 2015!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/05 17:06

Tigra mælti:

Sko.. strumpar eru jú kynlausir ekki satt?
Hvernig var þetta í myndunum.. bjuggu fleiri hundruðir saman.. allir nánast eins.. eða allavega af sama kyni.. þangað til galdrakall, sem ályktaði að þetta væru allt karlkynsstrumpar.. bjó til svokallaðan kvenkyns strump.. en hann hafði þetta auðvitað í líki konu og hafði fyrirmyndina mennskar konur.. en þvílíkt fyrirbæri höfðu strumpar aldrei séð fyrr.. þannig að ég reikna með að þeir séu ekki bara kynlausir, heldur ekki heldur með kynfæri.

Hægan nú. Skapaði Kjartan galdrakall Strympu?

Hvert þó í strumpandi. Þetta vissi ég ekki.

Þetta þarf að rannsaka nánar.

‹Sekkur sér í strumpafræði. ›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 25/4/05 19:29

Þetta eiga nú allir að vita.

En þó að Kjartan hafi búið hana til var það yfirstrumpur sem gaf henni "extreme makeover" og opnaði þar með flóðgátt að vondu raunveruleikasjónvarpi.

Um þetta má lesa hér:
http://bluebuddies.com/help/smurfette_created_by_gargamel.htm

Í sjálfskipaðri útlegð frá skerinu um óákveðinn tíma.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/05 19:31

Æ, ég var aldrei mikill strumpasérfræðingur, þó ég hafi lesið nokkrar bækur og séð þættina.

Getur ekki verið að strumparnir séu tvíkynja?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 25/4/05 19:40

Ég er nokkuð viss um að Smábaggi er karlmaður, mér finnst hann a.m.k. hafa karlmannlega framgöngu hér á lútnum.‹Starir þegjandi út í loftið› Þegar hann fer sem mest í taugarnar á mér er ég alveg viss.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 25/4/05 19:48

Alveg er þetta dæmigert fyrir þessa feminista. Um leið og einhver fer að hegða sér eins og asni er hann um leið stimplaður sem karlmaður.

Í sjálfskipaðri útlegð frá skerinu um óákveðinn tíma.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/05 19:55

Sem eru náttúrulega óafsakanlegir og særandi fordómar í garð karlkyns.

‹Starir þegjandi út í loftið og flautar sakleysislega›

        1, 2, 3  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: