— GESTAPÓ —
Fleiri hringhendur!
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 24/9/03 19:45

Fróði

Gyllta hringinn grípur sér
gerist fingurhraður
Ætíð kringum Gandalf fer
ansi slyngur maður.

DV

Inn'á baði ætíð er
aldrei svaðið treður
Þá með hraði þeytir sér
þar sem blaðið gleður.

Dabbi, Barbapabbi og Skabbi

Elsku Dabbi aldrei sér
eitthvað kvabb um hnísur.
Barbapabbi búinn er
að botna Skabba vísur.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: