Er þetta orðinn einhver "hvað dettur þér í hug þráður"?Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Það eru engin takmörk fyrir hvað menn nota sem mynd... ég dauðhrökk við að sjá þessa kanínu... en velkomin Kanína, ég venst þér örugglega... bíturðu nokkuð?
Horfir á öll krúsilegu dýrin.
NAMMI!!
Opnar munninn og bendir krúttlegu dýrunum að koma þangað.
Er Lúturinn að breytast í Húsdýragarðinn?
Halló, ég er Kanínan...
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Aha! Hádegismatur!
Kastar sér á eftir Kanínu, sem sleppur auðveldlega
Þetta er augljóslega ekki kát kanína ...
Þetta er augljóslega ekki kát kanína ...
Jújú, ég er afskaplega kát kanína Brosir
Bítur í eyrað á Þarfagreini
Hoppar út úr eldhússkápnu með hníf og gaffal ásamt servíettu í skyrtukraganum. Stingur grægislega með gafflinum til Kanínunnar í loftinu, nær henni ekki. Flýgur út um gluggann.
Veltir fyrir sér hvernig kanínustappa með kattarlifrarsósu myndi bragðast.
Veltir fyrir sér hvert sé hlutfall dýra vs. manna á Gestapó
Hvar dregur maður mörkin? Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður dýr?
Kannski fer það eftir því hvort viðkomandi er með persónuleika eða ekki. Það er hins vegar líka á gráu svæði.
Spurningin er nú kannski líka í hvorum flokknum við Jóakim lendum... Við erum eiginlega hvorki almennilegar endur né venjulegar manneskjur. Hvað er þá til ráða?
Íhugar hentistefnu og sækir um aðild að báðum fylkingum
Ætli ég sé ekki stærsta dýrið hérna?
Ég og Tígri þ.e. ... ættum við þá ekki að vera einhverskona yfirvöld yfir dýraríkinu?
ÉG?
Ætli ég sé ekki stærsta dýrið hérna?
Ég og Tígri þ.e. ... ættum við þá ekki að vera einhverskona yfirvöld yfir dýraríkinu?
Við skulum ekki gleyma íturvaxna einbúanum.