veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika
leggja skaltu kinn að kinn
og kitla handarkrika
Veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika.
Fúlan finnur angan þinn
framúr handarkrika.
veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika
í belginn skaltu berja inn
burtu aldrei hvika
veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika
láti þungur hnefi þinn
þúsund stjörnur blika.
veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika
sláð´af afli kalda kinn
kældu þennan blika
veiti sleginn vangann hinn
vinur ekki hika
sá sem elskar guðinn sinn
skal ei frá því kvika.