Ég stóðst bara ekki mátið. Þið megið brenna mig á báli núna. Merkilegt nokk þá er nafn þessa þráðar nákvæmlega nógu langt til að passa í hámarkslengd á nafni þráða hér.
Ég geng annars eingöngu í boxer nærbuxum, þar sem þær eru einstaklega þægilegar og svalar.
Heyr heyr!
Boxerinn er bestur mátulega víður. Geng ekki í öðru nema í hallæri.
Ég kem þá bara á bálið líka
Ja, persónulega er ég hrifnust af þessum þrengri b0xerum, ekki hinum víðari, nema þá sem svefnfatnaði. (Á karlverum þ.e.a.s.)
Já, það er víst margt sem menn gera fyrir útlitið og svalleikann. Þægindi eru oftast í öfugu hlutfalli við stíl.
Mér finnst karlmenn í svolítið víðum boxerum alltaf flottast Ljómar upp
Samt eru þröngar alls ekki ljótar.. en ég vil nú samt sem áður hafa það boxer..
Boxerarnir eru flottastir að mínu mati, skiptir í raun ekki máli hvort þær eru þröngar eða víðar.... Annars hef ég heyrt að karlmönnum finnist betra að vera í silkiboxerum en bómull eitthvað með núning að gera, er eitthvað til í því?
Ó já, það er fátt jafn ókynæsandi og 'tighty whities'...
Ég verð nú eiginlega helst að hafa þær dálítið víðar. Annars er það ansi óþægilegt.
Alltaf í boxer - á meira af þröngum núna, bara af því mér finnst minna úrval af flottum víðum.
Silkið er fínt en meira svona til hátíðarbrigða. Það er svo miklu auðveldara að henda bómullarnærbuxum í þvottavélina.
Aha... eitt af mínum eftirlætis umræðuefnum!
Fallegast finnst mér að sjá karlmenn í þröngum, svörtum boxer. Bómullar eru kannski ekki alveg jafn smart og þessar mjúku, glansandi... en það má fórna sumu fyrir þægindin.
En mér finnst að allir gaurar ættu að vera í þessum þröngu, svörtu boxerbuxum.
Y-brækur ættu að vera bannaðar með lögum!
Þægindi og nytsemi boxernærbuxna sem falla þétt að líkamanum, gerir það að verkum að þau verða oftast fyrir valinu... svo hef ég líka heyrt að konur finnist það flottara og hvað gerir maður ekki til að falla í kramið hjá kvenþjóðinni... Starir þegjandi út í loftið
En þetta minnir mig á eina góða sögu reyndar og ætla ég að segja ykkur hana núna:
Ég var eitt sinn sem unglingur að horfa á sjónvarp, undir sæng og á nærbuxum, þessum svokölluðu pabbanærbuxur með klauf (átti bara slíkt þegar ég var unglingur í sveitinni). Það var slatti af gestum í heimsókn, á mínum aldri að glápa með mér og ég sofna. Þegar ég vakna, þá er myndin búin og ég stekk á fætur og undan sænginni... þá var vinurinn búinn að lauma sig út úr buxnaskálminni, sem er töluvert afrek fyrir þann litla, því það var oft flókið að finna leiðina í gegnum klaufina... mikið varð Skabbi unglingur rauður í framan og skelfing var honum strítt á eftir...
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég hef ekki orðið var við neina vísindalega umræðu hérna.
Ég minni á að Vísindaakademía Baggalútíu er vettvangur fyrir vísindalegar rökræður og rannsóknir.
Þetta ætti kannski heldur heima á Almennu spjalli eða öðrum dægurþrasþráðum.
En þetta minnir mig á eina góða sögu reyndar og ætla ég að segja ykkur hana núna:
...
Svona refsar Guð þeim sem ganga í „Pabbanærbuxum“.
.... Annars hef ég heyrt að karlmönnum finnist betra að vera í silkiboxerum en bómull eitthvað með núning að gera, er eitthvað til í því?
Sko ég lagði fram mjög vísindalega spurningu?
Núningur af völdum nærfatnaðs er vondur. Skalskilyrðis laust henda slíkum nærklæðum.
Ef við berum saman núningsstuðul silkis og bómuls, þá hlýtur að vera hægt að finna út hvort sé með minni núning... ég held að silki hljóti að vera með lægri núningsstuðul, en hef engar tölur... þá er það líka spurning hvort hlýleiki klæðisins auki á svitamyndun (pungsvita)... og þar með núningsstuðulinn...