Heilir og sælir kæru Bagglýtingar. Gunnar H. heiti ég og er Mundason. Ég er nýgengin í hóp ykkar og vona að ég geti tekið þátt í skemmtilegum og innihaldsríkum umræðum í komandi framtíð. Ég vona að þið takið vel á móti mér og að við eigum eftir að eiga góðar stundir hér.
Stekkur hæð sína í fullum herklæðum
Ívar heiti ég Sívertsen og býð þig hjartanlega velkominn um borð í Baggalútíska heimsveldið.
Ég er sjúklega illa haldin af fyrirtíðarspennu í dag en ég get svo sem reynt. Velkominn!!!Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Blessaður Gunnar, og velkominn. Ekki ertu skyldur Gunnari þeim er við Hlíðarenda er kenndur?
Blessaður Gunnar, og velkominn. Ekki ertu skyldur Gunnari þeim er við Hlíðarenda er kenndur?
Já, ég er víst kominn í beinan karllegg frá honum, og í gegnum Högna Gunnarsson, ef einhver var að brjóta heilann um það.
Svo nafnið er þá bara tilviljun?
Já, það er ein ótrúleg tilviljun, ég held að foreldrar mínir hafi ekki áttað sig á þessu þegar þau skírðu mig.Klórar sér í höfðinu
Heill og sæll, Gleðigöndull. Hvað skilgreinir þú sem að leika?Starir þegjandi út í loftið
Velkominn, en endilega reddaðu þér mynd, myndlausir einstaklingar fara í taugarnar á mér... þeir eru svo ómyndarlegir...
Sæll Gunnar... ég á frænda sem heitir Gunnar. Getur ekki varist smekklegu brosi
GlEdi..... þú mátt líka endilega fara að redda þér mynd... í myndasafni eða fá Enter til þess að redda þér einhverju sérpöntuðu...
Já, maður verður að fara að gera það, þetta gengur ekki lengur.
Velkominn Gunnar! Vímus heiti ég og er þessa stundina örlítið undir áhrifum.
Takk kærlega. Mér þykir mjög vænt um þessar frábæru viðtökur.Ljómar upp og stekkur hæð sína í fullum herklæðum
Fullum herklæðum ?
Já, sem sagt öllum herklæðum sem maður myndi vera í.