Já, mér sýnist að það sé ekki mjög fjölkvennt hérna. En það er góðkvennt og það er fyrir öllu.
Mér hefur aldrei fundist neitt sérstaklega lítið af kvenmönnum hérna, kannski er það bara ég...
Hér einu sinni voru kvenmennirnir af skornum skammti.. en núna undanfarið hefur þeim verið að fjölga mjög ört.
Við erum að taka völdin hér eins og annarsstaðar... hægt en örugglega.
Já, þið farið létt með það stúlkurnar... við erum veikir fyrir við karlþjóðin...
Segir maðurinn sem missti sig gjörsamlega þegar ný stúlka kynnti sig á Lútinn.
Mikið er ég ánægð að heyra þetta... Veikgeðja karlmenn eru mitt uppáhald... auðveldara að ráðskast með þá.
(enda hefur Júlía þig alveg í vasanum Hakuchi)
Segir maðurinn sem missti sig gjörsamlega þegar ný stúlka kynnti sig á Lútinn.
Ég var að vísa í völd karlmanna í raunheimum.
Hér einu sinni voru kvenmennirnir af skornum skammti.. en núna undanfarið hefur þeim verið að fjölga mjög ört.
Ef farið er út í líffræðilegar pælingar er augljóst að karlpeningurinn getur ekki fjölgað sér (nema ég að sjálfsögðu). Nýliðun okkar byggist því á utanaðkomandi aðstoð. Aftur á móti getið þið fjölgað ykkur stjórnlaust án mikillar fyrirhafnar.
Bölvuð vitleysa. Það veit hver maður að allir villa á sér heimildir í netheimum. Ég er t.d. miðaldra, giftur, fjögurra barna faðir á Húsavík, Vladimir er ung, einstæð móðir í Garðabæ, í fjarnámi í hjúkrun, Haraldur er 12 ára strákgutti í Fellahverfinu, Hakuchi er fráskilin kona á breytingarskeiði og Nornin er greinilega kynóður og desperat einbúi á Ströndunum, líkast til komin fast að sjötugu og hefur aldrei verið við kvenmann kendur.
Vjer viljum sökum stöðu vorrar í raunheimum fara formlega fram á að þjer ljóstrið eigi upp einhverjum svona leyndarmálum þaðan hjer Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vjer viljum sökum stöðu vorrar í raunheimum fara formlega fram á að þjer ljóstrið eigi upp einhverjum svona leyndarmálum þaðan hjer Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Afsakaðu 'Vladimar' minn blikkar samsærislega. Og þakka þér fyrir alla hugulsemina og natnina við mig þegar ég lá á deildinni þinni fyrir jólin, á meðan þú varst í starfsnáminu, heillin. Þú hefur afskaplega mjúk handtök og þægilegt viðmót.
Nornin er greinilega kynóður og desperat einbúi á Ströndunum, líkast til komin fast að sjötugu og hefur aldrei verið við kvenmann kendur.
Það er nokkuð til í þessu.... fyrir utan að vera kynóður Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hvernig getur það eiginlega verið ? Er virkilega nothæft netsamband þarna á Ströndunum ?
Ja þar sem ég hef ekki fyrir konu að sjá, hef ég efni á að tengjast alltaf í gegnum Unisat gerfihnöttinn sem rússar skutu upp '97. Það kemur þó fyrir að vegna landfræðilegrar legu minnar detti ég úr sambandi við Unisat. Það gerist aðallega á fullu tungli og þegar það er stórstreymt.