Hún var nú sýnd á RÚV (með texta) þegar hún var næstum því ný, ásamt þætti um gerð myndarinnar. Þar var m.a. sýnt að það var einhver annar en Bowie að leika sér að kúlunum hans.
Hún var nú sýnd á RÚV (með texta) þegar hún var næstum því ný, ásamt þætti um gerð myndarinnar. Þar var m.a. sýnt að það var einhver annar en Bowie að leika sér að kúlunum hans.
Ég á myndina nú einhversstaðar á spólu líka. Þessi þáttur um gerð myndarinnar er einmitt á DVD diskinum. En ég held það sé vonlaust að fá diskinn með íslenskum texta. Keypti mitt eintak í Hollandi og þóttist heppin!
Hver í skrattanum er þetta?
Bíddu nú við er kominn samkeppni við Hexíu okkar?
Ha neinei elskurnar, slakið á. Þetta var ég, ég bara nennti ekki að skrá mig inn.
Andar léttara
Bíddu nú við er kominn samkeppni við Hexíu okkar?
En mikið hlýnar mér við þetta „okkar“. Gefur Bismark brjóstsykur
Nei... hvað höfum við hér...
Ljómar upp
NEEEEIIIIIIIIIIIIIIIII.............
Treður þræðinum í poka og kveikir í pokanum
Ehem. Heyrðu! Hvaða nýliðaógeð er að herma eftir mér!!
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Yndislegt!
Æ þetta er nú svosem ekkert það slæmt, ég byrjaði allavega ekki eins og sumir aðrir, með litlum stöfum í byrjun setninga og allt morandi í stafsetningarvillum og dónaskap.
Verst hvað ég var ófrumleg með nafnið sem ég valdi mér við fyrstu skráningu, ég var bara einmitt að hlusta á lagið með Supergrass á meðan.
Bryður negulnagla
Hvert var nafnið?
Strange One. Fínt lag, en ég er fegin að ég gat skipt. Mig minnir að Ísdrottningin hafi gefið mér nafnið Furðuvera.
Ææææ, sé ég hér að þú varst eitthvað hvumsa við það sem ég sagði. Og þó sagði ég ekkert illt.
Það var eins gott að þú fékkst ekki viðtökurnar sem flestir fá nú um daga. Þá er hætt við að við hefðum misst af þér.
-
Æjíí, þetta var fallega sagt.
Ég var nú bara eitthvað vitlaus og ekki komin upp á lag með það að túlka innlegg.
Eins og svo margir aðrir glænýir.
Þess vegna skulum við passa okkur hvað við segjum við óharðnaðan nýliða-skarann.
Þeir sem passa ekki inn grisjast út sjálfir.
-
Ég tek hér með undir orð Limbra... ég veit ekki hvort nokkur Skabbi væri hér ef ég hefði fengið þau viðbrögð sem sumir fá hérna þegar ég byrjaði (ég byrjaði reyndar með þeim fyrstu og því var ég varla nokkurn tíman nýliði, nema með öðrum)...
Rétta leiðin í byrjun myndi ég ætla að væri einfaldlega: vinsamleg tilmæli um að vanda málfar og stafsetningu...
Það er reyndar mjög misjafnt hvernig móttökur fólk fær, ég fékk bara góðar móttökur, einhvera hluta vegna. (Skýringin kannski sú að margir héldu mig aukasjálf virtrar persónu.) Billi jafnaldri minn (munar tveim dögum) held ég að hafi aldrei farið í gegnum hliðið, (nenni ekki að gá), Huxi og Andþór og Óskar urðu eins og heima hjá sér undir eins.
Ég held að mest af þessu skensi sé vegna þess að við erum þreytt og leið á endalausum aukasjálfum sem eru að gera at, og besta ráðið til að þekkja þau frá alvöru nýliðum er að sjá hvernig nýliðinn bregst við skömmum. Það er verst að alvöru nýliðar heykjast oft á þessum viðbrögðum. Það segir kannski ekki allt um hvort hann eigi eitthvert erindi hingað.
Mér finnst samt alltaf grunsamlegir nýliðar sem byrja með því að stofna þráð um sjálfan sig, og er þreytt og leið á endalausum aukasjálfum... ..nema þessum skemmtilegu auðvitað.