Fór ásamt góðu fólki úr Ekkó á myndina Rokk í Reykjavík.
Ágætis mynd, ekki fyrir flogaveika, en hljóð og mynd voru illa saman sett.
Þessi sem sniffaði límið var bestur!
♪ And the stars look very different today... ♪
Félagsmiðstöðinni Ekkó.
Og ég er sammála, hann var frábær... en þeir höfðu engan rétt til að taka límið af honum! Bölvaður dónaskapur hjá löggunni...
Perhaps the strange ones in the dome
Can lend us a book we can read up alone
Og nú vil ég fá að vita hvaða lag/ljóð þetta er, ef einhver væri svo góður að segja mér?
Meistari Bowie. Fyrsta ljóðainnlegg mitt var úr Sound and Vision. Vamban svaraði með Space Oddity í síðasta innleggi vitnaði ég í Drive in Saturday af plötunni Aladdin Sane.
Bowie er góður. Samt fannst mér hann bestur í myndinni Labyrinth. Enda cult-mynd þar á ferð Ljómar upp
Úff...ég fór á hana í bíó sem smákrakki.
Hárgreiðslan, vá maður, hárgreiðslan.
Eða klæðnaðurinn! Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri En besta skemmtun, seiseijá. Á hana á DVD og horfi reglulega á hana. Fín þegar maður er veikur, ojá.
Verður skömmustuleg yfir fáfræði sinni í tónlist og kvikmyndum
Lifðu og lærðu Strangone mín.
Lofum himnafaðir ! Haleluja.
-
Bowie er góður. Samt fannst mér hann bestur í myndinni Labyrinth. Enda cult-mynd þar á ferð Ljómar upp
Ahh fær nostalgíukast ég er í stanslausri leit að þessari mynd í DVD safnið, hef séð hana tvisvar í búðarhillum, og þá í bæði skiptin erlendis, en í hvorugt skiptið haft vit á að grípa með þó ekki væri nema eitt eintak af þessari eðalræmu og taka með heim til að spila aftur og aftur. Er alveg ómögulegt að fá þessa mynd með íslenskum texta?Brestur í óstöðvandi grát