Abbababb, það er ég sem sé um að skammast mín hérna á þessu spjallsvæði.
Vert þú bara í því að teikna og spila á gítar. Taktu svo mynd af okkur saman í skömmustulegu gítarsóló.
-
Af hverju ertu með svona stæla? Ég gerði þér ekkert... Brestur í óstöðvandi grát
Blessuð! Skál! Sviptir sig klæðum og hleypur um
Skál!
Blessuð! Skál! Sviptir sig klæðum og hleypur um
Vamban þó... hér eru börn á ferð... hendir silkislopp í stráksa
Af hverju ertu með svona stæla? Ég gerði þér ekkert... Brestur í óstöðvandi grát
Dæsir
Ef ég bara vissi hvaða stæla þú ert að tala um. En varðandi að gera mér nokkuð... ég held svei mér þá að þú hafir bara ekki gert mér, né nokkrum öðrum hér, nokkurn skapaðan hlut. Jah, nema þá að biðja okkur um hjálp með myndina þína. Ég veit svo ekki betur en ég hafi brugðist hratt við og látið þér í té slóð að upplýsingum varðandi það efni.
Reyndu svo að lesa nokkra þræði og athuga hvort þér líki nokkuð að vera hér. Ég myndi alls ekki vilja að fólki sem líkar illa hér sé haldið föngnu á vefsvæðinu.
-
Henni á áræðanlega eftir að líka ágætlega. Hverskonar bölsýnir eru þetta Limbri? Hrökklast aftur á bak og hrasar við hugsar um stöðu Limbra á kúlunni Kannski að hið danska "noget" sé að flækjast hér inn sem hrósyrðisútgáfa af nokkuð? Leggst í djúpar málfræðilegar pælingar (enda er það danska að "pæla"). Sofnar vært.
Verum nú ekki að hræða kvenmennina í burtu! Lítur illum augum á Limbra
Góður Limbri, ekki láta þessa vitleysinga komast upp með að skilja ekki skiljanlegustu færslur og haga sér svo undarlega í framhaldi.
Hann var bara séntill eins og venjulega hann Limbri... ekki sá ég neitt athugavert við þetta kannske eru 14 ára unglingar viðkvæmari en aðrir, veit það ekki það er svo langt síðan ég var slíkur
Nagar á sér táneglurnar og borðar þær síðan
Hér virðist vera á ferðinni vönduð unglingsstúlka, ekki smituð af alvarlegri gelgju. Því ber að fagna og er hún velkominn hingað á Baggalút.