Ég verða að segja að hvorki treysti ég mér til að drekka kaffi með Nafna, né hinum fagra Sverfli...raunar engan vökva, eins og þeim kumpánum hættir til ótímabærs þvagláts.
Vjer höfum hitt meirihluta ritstjórnarinnar Ljómar upp
Ég hef hitt Össur Skarphéðinsson á fylleríi. Það var fjör.
Rakst líka á Guðna Ágústsson í mínum heimabæ. Við verslum matvöru á sama stað.
Ég hef talað við Jakob Fr. Magnússon Stuðmann og prófkjörsframbjóðanda í síma. Og svo sá ég eitt sinn biskupinn, Karl Sigurbjörnsson, í Kringlunni. Ég var að spá í að vinda mér að honum með biblúíutilvitnun, hús föðurins að ræningjabæli eða kasta frá þér eigum þínum og fylg mér, en kunni svo ekki við það, sérstaklega þar sem ég var ekki alveg með tilvitnanirnar á hreinu.
Kúkaði í næsta klósett við hliðina á Fisher í vikunni. Við sátum sem sagt í sitthvorum básnum ég og skákmeistarinn og tefldum við páfann. Þetta var nokkurs konar fjöltefli.
Ég var að kaupa mér áfengi í Noregi um síðustu jól, þá mætti ég stráknum sem tók þátt í norsku útgáfunni af "The Bachelor". Mér fannst það ekki merkilegt.
Vjer höfum hitt meirihluta ritstjórnarinnar Ljómar upp
Það er einstök lífsreynsla! Starir þegjandi út í loftið og hugsar til allra góðu stundanna með ritstjórn
Aha...
Þá má ég til með að segja ykkur hver er frægasti útlendingur sem ég hef hitt.
Það myndi vera stelpan sem lék dóttur Roseann í samnefndum þætti. Við stóðum hlið við hlið í rúllustiga hlær óstjórnlega
Ég hékk heilann dag í molli í Beverly Hills þegar ég bjó í San Bernadino og sá engann þekktan nema hana! Annars sá ég bara mellur og dópsala...
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég sá líka Jason Biggs (the guy who fucked the pie) úti í ísbúð með gauja litla
Borgarstjórinn kom í heimsókn í vinnuna mína í gær.
Hún var í æðislegri svona "ég er töff kona á framabraut og læt ekki bjóða mér hvað sem er" dragt sem ég dauðöfundaði hana af.
Mig langar svo að vera kona á framabraut.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann