Jæja, það má sosum birta þetta hér. Ég á heiðurinn af þessari afbökun.
Aragorn er ansi lúinn
eftir ótal hlátrasköll.
Nú er Fróði næstum búinn
nú er sagan öll?
Heyrðu snöggvast, Sauron minn
snjallur vin minn kæri:
Heldurðu ekki að hringinn þinn
ég hermannlega bæri?
Gollum hann er garmur sá
grip er fann í ánni
djásni ann það er að sjá
en ekki kann í það að ná
Vitaskuld er við hæfi að hafa stikluvikin hringhend við svona tækifæri
Takk fyrir, það gleður mig líka.
Sauron tældi Saruman
saurgan rökkursmiðinn
margur þvældist feigðarflan
og féll í dökkumiðin