Segðu!
Þá er ég búinn að því... hvernig væri annars að hægt væri að raða Heimavarnarliðum eftir orðafjölda, viss um að ég myndi þokast niður Heimavarnaliðalistann við það... Starir þegjandi út í loftið
Ég væri gott sem horfinn! Ég skrifa yfirleitt svo hnitmiðað og laggott.
Reyndar er reynt að hindra eins stutt innlegg og mögulegt væri (þ.e. tóm innlegg) því ef vjer reynum að senda frá oss slík innlegg er oss tilkynnt að vjer sjeum api (sem er reyndar rjett því hvað er Homo Sapiens Sapiens annað en apategund ?)
Það vitum vjer en þá er eigi lengur um alveg tómt innlegg að ræða.
Tvö er nóg. Var einmitt að komast að því rétt í þessu. Og jú ... það verður alveg tómt þegar það fer inn í kerfið. Ljómar upp
Þú getur t.d. séð það með því að vitna í eitt slíkt. Það er ekkert þar. Bilin tvö eru horfin.
á-rans ASNAR í rítstjórn....Hversu oft á ég að þurfa að segja ykkur að „á“ er fullgild skilaboð??? Rífur í hárlýjurnar á Myglari og sparkar í Spesa
Það þykir mér tóm innlegg... jafnvel tómlegg... eða bara tómatur ef maður vill skilgreina það nánar...
Þá er það ekki lengur 'á' heldur 'á '. Á þessu tvennu er reginmunur.
„Á“ gæti til dæmis verið svar við spurningunni „Hvaða bær er þetta, gæskan?“
Þetta er því gróft brot á tjáningarfrelsinu - lagið þetta strax, apar! Skellir hurðinni að ritstjórnarskrifstofunni harkalega á eftir sér
Eða „Sagðirðu á eða æ?“
Þessu væri reyndar hægt að svara með 'já' Starir þegjandi út í loftið