3- Gott er að kynna sig í upphafi, menn fá yfirleitt góðar móttökur hérna, sérstaklega ef menn hafa í heiðri ofangreind atriði.
Halló. Mig langaði bara til að kynna mig. Ég er frænka Smábagga.
Takk fyrir. Glottir eins og fífl
Frænka Smábagga?
o..ó..
Vertu annars hjartanlega velkomin... vonandi ertu ekkert lík honum?
Nei reyndar ekki. Allavegana finnst mér það ekki... Starir þegjandi út í loftið
Það er gott að heyra. Hæpið er að Baggalútur gæti þolað tvo Gestapóa á við Smábagga.
En vertu annars velkomin.
Tja, mér finnst Smábaggi bara fyrirmyndar gestapói. Hann venst að minnsta kosti.
Og velkomin, Nelicquele.
Takk. Aftur. Hann er jú svosem ágætis náungi. Ljómar upp
Og einn besti frændi sem ég á. Glottir eins og fífl
Smábaggi er fínn.. en einn er nóg.
Nei.. einmitt þessvegna ertu velkomin!
Brosir út að eyrum
Hættið þessu. Hún er ágæt. Stundum frek reyndar, en oftast ágæt. Eða stundum. Eða stöku sinnum, a.m.k.
Smábaggi er ekki nýgræðlingavænn
Þú verður að fá þér mynd stelpa.
Hvað viltu vera?
Ertu að ýja undir að hún gangni undir fölsku flaggi? Notaðu þína eigin mynd, það gerði ég.