Það virðist ekki vera. Ég fór bara einu sinni á sjóinn með þér Hóras, og þú lést mig húka niðri í lest að endurstafla kössum. En hvað sem því líður þá er troll hugmyndin góð uppá kóbaltið að gera en ég er ekki viss um kusurnar.
Ég heyrði það í útvarpinu núna á dögunum að í ákveðnum högum í norður Ameríku gæti ýmis kvikfénaður ekki þrifist þótt þeir reyndust vera vel grösugir. Ástæðan reyndist vera skortur á kóbalti (þetta er dagsatt ég heyrði þetta). Og skorturinn er mælist hálft gramm á ferkílómetra hver 100 ár!
Getur einhver skýrt þetta út?
Námumennirnir eru bara að standa sig