Eftir töluvert flakk um Gestapó undanfarna klukkustund virðist komið að því að lesnir þræðir afblámast ekki þótt lesnir hafa verið... er þetta stillingaratriði hjá mér?
Meira að segja helst blái liturinn á þessum þræði, þó ég sé augljóslega búinn að lesa hann...
Það getur ekki verið. Óvinir ríkisins stálu því frá honum er hann var að leita að Limbra.
Er þá ekki ráð að kalla á bilanaþjónustu Enters og félaga og fá eitthvað við þessu?
Eftir töluvert flakk um Gestapó undanfarna klukkustund virðist komið að því að lesnir þræðir afblámast ekki þótt lesnir hafa verið... er þetta stillingaratriði hjá mér?
Ég verð stundum var við þetta líka, þá hefur oft gefist vel að kasta öllu út úr vaframinninu, öllum kökum og söguslóðum. Skrá mig síðan inn að nýju.
Eins getur þetta gerst ef fleiri en einn vafragluggi er opinn í einu.
Gefur Skabba köku
Hafið þér reynt að endurhlaða síðuna?
Ég var með startkaplana tiltæka og rafgeymir... en kunni ekki nægilega vel á gripinn...