Ég tek upp umræðu sem Ég sjálfur hóf á fyrirspurnarþræðinum.
Af hverju er ekki hægt að gefa núll stjörnur í félagsritum? Þ.e. fyrir gagnrýni.
Það er væntanlega til þess að erfiðara sé að rakka ákveðin málefni niður.
Hvað með hálfar stjörnur?Klórar sér í höfðinu
Fín hugmynd.
Hvað með að skipta stjörnum út fyrir eitthvað meira spennandi. T.d. sprengistjörnur eða svarthol.
Er ekki hægt að gefa 0 stjörnur? Jahérna, alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Hvað gerist ef maður reynir?
Ein stjarna. Ætlaði að gefa núll stjörnur fyrir nýjustu gagnrýni mína.
Er ekki hægt að gefa 0 stjörnur? Jahérna, alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Hvað gerist ef maður reynir?
Er þetta ekki bara gert til að hindra að vjer getum skrifað gagnrýni á stjörnugjafarkerfið hjer og gefið því núll stjörnur fyrir að eigi sje hægt að gefa núll stjörnur ? Starir þegjandi út í loftið
Núllið er komið í gagnið. Hvað gæti það nú staðið fyrir, annað en hauskúpu eða stjörnu?
Núllið er komið í gagnið. Hvað gæti það nú staðið fyrir, annað en hauskúpu eða stjörnu?
Gæti verið hnútur. Þegar gefnar eru núll störnur eru vissar hnýtingar í gangi.
Önnur hugmynd er mörgæs en vegna virðingar við Linux notendur þá set ég slíka hugmynd varlega fram.
Dauðastjörnuna? flissar
Mynd af Megasi?
Frekar kæmi ég með skítkastið á Megasinn en hakakrossinn, en gott og vel. Ég myndi setja Enter. Hversu marga Entera hægt væri að gefa.
Frekar kæmi ég með skítkastið á Megasinn en hakakrossinn, en gott og vel. Ég myndi setja Enter. Hversu marga Entera hægt væri að gefa.
Engan. En ef það væri hægt, væri svarið einn, og ég fengi hann.
Núllið er komið í gagnið. Hvað gæti það nú staðið fyrir, annað en hauskúpu eða stjörnu?
Ég á eina kvikmyndauppflettibók þar sem arfalélegum myndum er gefin mynd af kalkúni (þ.e. vísun í 'turkey' sem lélegar myndir eru oft nefndar á engilsaxnesku).