Einmitt. Ég gróf þá sömu upp á google. Þá genabreyttu finn ég hvergi.
Ef og ég endurtek; ef, ég myndi skipta um mynd (sem mun ekki gerast) hver ætti að sjá um að prýða tilkomulaus skrif mín?
-
Þín mynd er einkar vel heppnuð, Limbri, en ef ég ætti að tengja annað andlit við innihaldsrík skrif þín, þá yrði það einna helst ásjóna Hólmfríðar Karlsdóttur.
Þín mynd er einkar vel heppnuð, Limbri, en ef ég ætti að tengja annað andlit við innihaldsrík skrif þín, þá yrði það einna helst ásjóna Hólmfríðar Karlsdóttur.
Ekki leiðum að líkjast.
-
Góð ákvörðun og leiðir það hugann að því hvort ég eigi að skipta aftur yfir í gömlu myndina mína, en sú umræða hefur reyndar oft farið fram hér á síðum Gestapó...
Tækir þú upp gömlu myndina, tæki ég upp auka flösku af Ákavíti þér til heiðurs.
-
Fyrst var ég apakríli og svo maðurinn með ljáinn og síðan Powell og að lokum það sá sem ég er í dag.
Gaman væri að geta nálgast allar þessar gömlu myndir á einum stað og yljað sér við minningarnar. Raunar finnst mér að bannað eigi að vera að skipta um myndir.
Fyrstu dagana, meðan Enter var að snyrta myndina af mér til, notaði ég mynd af Peter Sellers.
Raunar finnst mér að bannað eigi að vera að skipta um myndir.
Kapítalisti! Man skyndilega að súg* er hættur að tala svona Fasisti!
*Afturbeygt fornafn í nefnifalli.
Ásjóna mín er alltaf sú sama, en auðvitað breyti ég um svip af og til, eftir því sem við á.
Myndbreytingar geta verið mjög af hinu góða; Hóras var t.d. voða óeftirminnilegur áður en hann fékk áramyndina sína og nýja myndin hans Nafna hæfir honum mun betur en sú gamla.
Hins vegar kunni ég miklu betur við gamla Ívar.
Stundum vöxum við líka uppúr þeim myndum sem okkur prýða, eins og gamlar vegabréfsmyndir.
Viss er ég að fáir myndu þekkjar 2 ára gamla mynd af mér.

Skellir uppúr
-