En hvað með mig. Þegar ég var órakaður, rustalegur og Júlíulaus samúræ?
Ég er búinn að steingleyma hvernig ég var í upphafi. Man einhver eftir því?
Þessi er ekki upprunaleg... ég var með eitthvað allt annað alveg fyrst.
Ég man að Sverfill var með frábæra Burt Reynoldsmynd er hún þarna?
Engin mynd hefur sýnt hið sanna eðli karaktersins betur en englabossamyndin af ljúflingnum Frella.
En merkilegt hvað hann Sverfill fríkkar með hverri nýrri mynd.
Mig minnir að Ég sjálfur hafi verið með mynd af karli með yfirvaraskegg, ekki ólíkum Burt Raynolds, en þó ekki Burt. Myndin var blá og karlinn líklega með hatt og vindil...Gæti hafa verið Hemingway á yngri árum. Er Enter kannski búinn að finna gömlu myndina?
Jú heyrðu! Það var Hemingway. Hann var samt ekki með vindil minnir mig.