Það er aldrei að vita að fleiri fylgi. Ég vil endilega að þessi þráður verði vakinn til lífsins aftur. Allir sem kenningu valda leggi höfuðið í bleyti!
Um hvern er spurt?
Semur rúkkinn ræmur
ríkir þá og ýkir
ætíð þaninn þrútinn
þykir hagur mikið
gandreið að svörtum söndum
saup á mörsins raupi
svanna kappinn kenndi
kjaftasögum lapti.
Athugasemdir varðandi dróttkvæði þetta, ef einhverjar eru, eru vel þegnar.
Er spurt um Baltasar Kormák?
Ekki er það. Þú ert þó eitthvað heitur. Þú mættir alveg gefa upp það sem þú hefur þegar ráðið úr.
Ég ætla að giska á John Wayne
A Svartir sandar = Stórmyndin "The Black sands of Iwo Jima"
B Kjaftasögum lapti = Wayne tók þátt í að benda Óamerísku nefndinni á meinta kommúnista í Hollywood. Uppskar fyrir það fyrirlitningu margra í bransanum, en lét það ekkert á sig fá.
Skemmtileg tilgáta, en ekki er hún rétt. Athugið að mörsins raup er mikilvæg vísbending.
Því miður er ég ekki mikill kenningasmiður - hér er ekki að finna kenningar af gamla skólanum þannig séð. Svartir sandar eru raunverulegt fyrirbæri - ekki kenning.
Vonar að enginn verði reiður út af þraut þessari
Semur rúkkinn ræmur - kvikmyndagerðarmaður
ríkir þá og ýkir
ætíð þaninn þrútinn - drykkfelldur?
þykir hagur mikið - vel metinn af gagnrýnendum jafnt sem áhorfendum
gandreið að svörtum söndum
saup á mörsins raupi - hlustaði á raup mörlendinga/Íslendinga
svanna kappinn kenndi - sprengi í nokkrar kellingar
kjaftasögum lapti. - sagði kjaftasögur um landið okkar
Quentin Tarantino?
Rétt er það!
Gandreið er heiti fyrir flug í vélknúinni flugvél. Hann flaug þannig að svörtum söndum, þ.e. til Íslands. Hann ríkir (leikstýrir) og ýkir (skrifar handrit, þ.e. semur ýkjusögur). Annað er rétt.
Nema ætíð þaninn þrútinn. Það á að lýsa því hversu mikið maðurinn kjaftar og baðar út höndunum þegar hann segir frá.
Þess má einnig geta að rúkkinn merkir grobbinn. Ég ætla svosem ekki að halda því fram að Quentin sé sérstaklega grobbinn, en a.m.k. með ágætis sjálfstraust (hann má líka alveg hafa það).
Vonandi þýðir þetta ekki að ég þurfi að fara að semja dróttkvætt? Ef svo er biðst ég (í bili a.m.k.) undan þeirri ábyrgð.
Ég held að þetta sé opinn leikur, svipað og vísnagátuleikurinn, þ.e. allir eigi réttinn. (Ef ekki þá ætti hann að vera það.)
Frábær þraut, ég vil biðja skáldin að halda áfram á þessari braut.
Má þetta vera svona? Ég æski harðrar gagnrýni ef ekki
góss á vaka ljóss
gaular, hermir aula
svanni þrautir vann
margan gerir argan
af argent má kennd,
ok alfa er nafns lok
næsta dimma hæsta
þýðir kenni síðra
Þessi er náttúrulega allt of augljós, en um hvern er spurt:
Hart er nú í heimi
herlaus þjóðin rausir.
Þyrilflugur þotnar
þeysast burt af beisi.
Bítla- veslings –bærinn
bitur eftir situr.
Hrín í hali keikum.
Herskyldu vér vildum.