— GESTAPÓ —
Fréttaskot.
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 22/3/05 22:06

Hér væri gaman að sjá skot og skæting,um allt sem tengist fréttum.
Og í bundnu máli að sjálfsögðu.

Heims í fréttum helst það var
og hugans mesti vaki.
Að heimtust nokkrir hálfvitar
og hundspott niðr'af þaki.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 23/3/05 14:41

Ljótt er ástand, landsins Seðlabanki
læknað getur hross en ekki annað.
Fisher kom í huga þessi þanki;
Það ætti allt amerískt að vera bannað!

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 31/3/05 09:44

Bússa sá ég bjórinn þjóra
bagg lútinn.
Ræðir við þann risastóra
rass Putin.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 7/4/05 11:33

í tilefni af þessari fregn:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1132664

Skáktölva mannleg nú skammar þá Garry og Bobby.
Og segir þá hvorki vit sitt né virðingu efla.
Anatoly glímt hefur oft við eitt ömurlegt hobbý.
Á kamrinum sitja og rembast við páfann að tefla.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 5/5/05 02:58

3xfimm í lauslæti
ljóssins sviku kvinnu
Oprah sexuals í'æti
ærðu öngva sinnu

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: