Ef maður hefur horft oftar en einu sinni á júróvísjón þá er maður plebbi. Það stóð a.m.k. í plebbabókinni eftir Jón Gnarr.
Er það lögmæt afsökun að hafa verið ölvaður á meðan slíkt áhorf fór fram?
Það fer eftir því hvort þú varst drukkinn eftir nokkra bjóra eða ákavítisflösku.
Þetta var fyrir tíma ákavítisdrykkju minnar ...
Skammast sín
Viðlagið er stolið frá hljómsveitinni Sum 41. Það má finna í laginu "We´re all to blame"
http://www.islandrecords.com/sum41/site/musicvideo_albums.las
Reyndar ekki alveg Vamban minn. Nálægt því, en ég held þetta sé ekki sami hljómagangur.
VÍST! Fer í fílu
Það sem mér finnst markverðast er að Gísli vildi meina að Eurovision-stefið væri úr 9. sinfóníu Beethovens. Nú er ég ekki mjög skóluð í þessum fræðum og get ekki sagt til um hvaðan stefið kemur, en þykist þó fullviss um að það er ekki úr 9. sinfóníu Beethovens. Er kannski einhver ykkar Bagglýtinga sem getur frætt mig um það, því ég nenni ekki að leita mér upplýsinga á þartilgerðum vettvöngum.
Þar sem enginn ykkar gat hjálpað mér þá hjálpaði ég mér bara sjálf og talaði við mann sem er allfróður um klassíska músík. Stefið er, eins og ég gat mér til, alls ekki eftir Beethoven. Þetta er eftir Marc-Antoine Charpentier og er eitt af Te Deum-verkum hans. Í C-dúr, nánar tiltekið.
Eigum við ekki öll að fara og leyfa Gísla að heyra hvernig 9. sinfónía Beethovens hljómar? Ljómar upp
Eða troða því upp í óbóið á honum, a là Enter? Glottir eins og fífl
Hæmmz**
Mér finnst nýja íslenzka eurovisionlagið algjört ÆÐÐII líka myndbandið það er skohh það meerrgjaaðaasta hingað til síðasta var skohh LAME**
Bæbbz**
Kveðja
Skvíza aldarinnar..!**~
já...
En ég segi allavega fyrir mig að mér fannst mest megnis lítið varið í þetta framLag okkar til Evróvisíon. Og ég hugsa að mjög svo vanskapaðir kolkrabbar gætu gerta betra myndband heldur en það sem sýnt var í sjónvarpinu.
Þetta var ágætt til síns brúks, þ.e.a.s. til að notast við í Eurovision. Það getur hver maður sagt sér að fimmtugur Evrópubúi hefur ekki hundsvit á tónlist og væri þess vegna vís til að kjósa þetta lag okkar.
Varðandi myndbandið þá fannst mér framlag Spaugstofunar ágætt.
Þetta lag er frat. Það væri fínn endir á þessu myndbandi ef hún myndi skjóta lagahöfundinn til bana.
Getur Ísland ekki sent smá Rokk í keppnina svona til tilbreytingar?Starir þegjandi út í loftið
Afskaplega held ég að aðrar Evrópuþjóðir með reynslu af stríði og hörmungum hafi góðan húmor fyrir lokum þessa myndbands. Mjög smekklegt.
Afskaplega held ég að aðrar Evrópuþjóðir með reynslu af stríði og hörmungum hafi góðan húmor fyrir lokum þessa myndbands. Mjög smekklegt.
Svona svipað og að koma sem flóttamaður frá Balkanskaga rétt fyrir áramót.