Hefur enginn annar tekið eftir því hversu gervileg sólgleraugun hans Ívars eru?
Ég krefst þess að hann taki þau niður og sýni okkur hvað hann er að fela.
Ég held að Ívar sé stökkbreyttur x-man. Ef hann tæki þau niður myndu skjótast rauðir og banvænir geislar út um allt.
Er hann með sólgleraugu? Ekki hafði ég tekið eftir því, enda staurblint og kolruglað gamalmenni.
Ég fór að skoða manninn og þetta er satt, hann er með sólgleraugu. Ég ætla sko að láta það fara í taugarnar á mér framvegis.
Þið misskiljið, þetta eru einu augun hans. Hann er svona eins og Prúðuleikarinn Zoot (saxófónleikarinn). Ef hann tekur sólgleraugun niður, þá er ekkert á bakvið. Starir þegjandi út í loftið
Þið misskiljið, þetta eru einu augun hans. Hann er svona eins og Prúðuleikarinn Zoot (saxófónleikarinn). Ef hann tekur sólgleraugun niður, þá er ekkert á bakvið. Starir þegjandi út í loftið
Geymir hann tómið á bakvið?
Hvernig væri það nú ef settar væru upp reglur um sjálfmyndir hér á bæ, eins og ef maður ætlar að fá sér pólskt vegabréf (aðallega Pólverjar sem gera það samt) þarf skýrlega að sjást í vinstra eyrað á viðkomandi á passamynd hans, hér gæti ef til vill þurft að sjást í hægri augabrún? Æ segi nú bara svona...
Ekki hægri...
Ekki hægri...
Vinstri snú - fuck you!
Gung-ho, gung-ho.
[...] hér gæti ef til vill þurft að sjást í hægri augabrún? Æ segi nú bara svona...
Ég veit ekki betur en báðar augabrúnir Ívars sjáist mjög vel. Er þá ekki allt í þessu fína?
þetta var nú bara svona smá pæling, það borgar sig ekkert að vera að taka mig allt of alvarlegaDæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Mér finnst hann bara sætur svona! ♪syngur létt lög af plötum♪
Svo við færum umræðuna nú á vitrænna plan ...
Hvað finnst fólki annars um mín sólgleraugu?
Hæjj**
Þau eru ljót skohh laungu dottin úr tízku skohh
Bæbbz
Kveðja
Skvíza aldarinnar!**~
Hafiði heyrt um mannin sem var svo bjartsýnn að hann þurfti að ganga með sólgleraugu?