— GESTAPÓ —
Er RÚV geimskip?
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 20/1/06 12:58

Hr. Forseti? Nú skil ég ekki alveg hvert þér eruð að fara, nema jú fram í tímann.
Ef þér ferðist í dag ,föstudag, fram í tímann með tímavél yðar í þeim fróma tilgangi að kanna gæði næstu árshátíðar, hvernig getur þá Glúmur rokið af stað á sunnudaginn?
Á hann eigin tímavél??
Og ef svo er, er hún þá það stór að hann getur tekið yðar vél um borð eða verður hann að skilja sína eftir!? þegar hann stelur yðar.

Og ef svo fer að hann kemst með báðar í burt, munum vér öll sem á árshátíðinni verðum sitja þar föst og halda því árshátíð til eilífðar? EÐA.....Munið þér einn sem ferðaðist fram í tímann, finna paradís og dvelja á eilífðar árshátíð hafandi það hlutverk eitt, fyrir utan það að skemmta yður, að opna fyrir oss hinum einu sinni ár hvert?
‹Klórar sér í höfðinu›

P.S. Og ef þér komið aftur á morgun hvernig getur þá Glúmur ferðast fram í tímann frá sunnudegi og stolið tímavél sem þér komuð á til baka í gær?

Klórar sér aftur í höfðinu

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 21/1/06 12:17

Ég er til með að leggja fé í verkefnið. ‹Fjárfestir í fortíð og framtíð.›

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 21/1/06 21:32

Offari mælti:

Það er því miður ekki hægt að laga þau mistök sem búið er að gera. Það að breyta fortíðinni með lygasögum getur gert illt verra því þá lærir framtíðin ekkert af mistökum fortíðarinnar.

Ég er ekkert að tala um að breyta fortíðinni með lygasögum. En þó, kannski má kalla minnisbreytingar lygar. Ég kýs að tala um minnisleiðréttingar, við erum jú alltaf að fást við þær. Ef slík tækni væri þróuð áfram mætti spara Vladimir og ráðuneyti hans stórar fúlgur.

Feministi og fjallakóngur Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 21/1/06 22:00

Ég tel að maður geri sömu mistökin aftur ef að eitthvað segir manni að það hafi ekki verið mistök. Bakkus karlinn fær mig oft til að gleyma mistökum og stundum hlusta ég of mikið á hann.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 21/1/06 22:24

Málið er nú mikið flóknara en þetta. Hvernig skilgreinir maður "mistök" gerir þú alltaf mistök ef þú nærð ekki fullkomnun?
"Mistök" dagsins í dag geta leitt til..ja, t.d ánægjulegrar útkomu síðar meir. Og voru það þá mistök? Þín mistök geta líka verið happ fyrir aðra.

Svei mér þá, þessi pæling gæti orðið að heilli fræðigrein, nema ég sé að gera mistök og hún sé það nú þegar.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 21/1/06 22:32

Það er rétt að stundum hagnast menn af óförum annara. Mistökin voru hinsvegar fundin upp til að læra af þeim, því hagnast maður af mistökum annara ef maður lærir af þeim. (Var ekki Guð sá snillingur sem skapaði mistökin í okkur?)

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 21/1/06 23:01

Gerði hann ekki bara mistök?

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 21/1/06 23:11

Voru þau ekki gerð af ásettu ráði?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 22/1/06 00:09

Ef guð hefur gert allt af ásettu ráði þá er hann ekki með réttu.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 22/1/06 00:10

Hvað er rétt og hvað er rangt?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 22/1/06 03:51

Það veit Guð. ??

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/1/06 21:15

dordingull mælti:

Hr. Forseti? Nú skil ég ekki alveg hvert þér eruð að fara, nema jú fram í tímann.
Ef þér ferðist í dag ,föstudag, fram í tímann með tímavél yðar í þeim fróma tilgangi að kanna gæði næstu árshátíðar, hvernig getur þá Glúmur rokið af stað á sunnudaginn?
Á hann eigin tímavél??
Og ef svo er, er hún þá það stór að hann getur tekið yðar vél um borð eða verður hann að skilja sína eftir!? þegar hann stelur yðar.

Og ef svo fer að hann kemst með báðar í burt, munum vér öll sem á árshátíðinni verðum sitja þar föst og halda því árshátíð til eilífðar? EÐA.....Munið þér einn sem ferðaðist fram í tímann, finna paradís og dvelja á eilífðar árshátíð hafandi það hlutverk eitt, fyrir utan það að skemmta yður, að opna fyrir oss hinum einu sinni ár hvert?
‹Klórar sér í höfðinu›

P.S. Og ef þér komið aftur á morgun hvernig getur þá Glúmur ferðast fram í tímann frá sunnudegi og stolið tímavél sem þér komuð á til baka í gær?

Klórar sér aftur í höfðinu

Vjer grunum Glúm um að eiga tímavjel og því getur hann ef svo er ferðast fram og til baka um tímann ef tímavjel hans virkar (reyndar er svo langt síðan hann hefur sjest hjer á Gestapó að vjer óttumst að hann sje enn á ný fastur í skrumgleypinum).

Eigi er nauðsynlegt að hann steli tímavjel vorri þó dæmi vort geri ráð fyrir því. Hann gæti líka eyðilagt hana.

Varðandi P.S.: Hann getur það með því að ferðast fram í tímann til árshátíðarinnar þar sem vjer erum með tímavjelina. Sú staðreynd að vjer erum komnir til baka gerir það að sjálfsögðu eigi ómögulegt heldur breytir engu.

Það er alls konar svona fikt og tímaflækjur er nauðsyn ber til að setja ítarleg lög um. Annars geta skapast margvísleg vandræði líkt og umræða þessi ber vott um. Einnig skortir mjög fræðslu. Hvað ef einhver gerist tímahrekkjalómur og gerir óvart eitthvað er hefur verri afleiðingar en til stóð, t.d. þær afleiðingar að einhver hættir hugsanlega allt í einu að vera til ? Það er ei bara nauðsyn að tryggja í eitt skipti fyrir öll að slíkir 'hrekkir' verði ólöglegir heldur er eigi síður nauðsyn að hindra með fræðslu að stórir 'tímaglæpir' sjeu óvart framdir af illa upplýstum tímafúskurum ‹Minnist eigin tvöfeldni (í bókstaflegri merkingu) sl. haust en steinþegir um það)›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 22/1/06 21:33

Er það langtíma nám að fá ökuréttindi á tímavél.?
Þarf maður að vera með hrekklausan feril til að geta tekið prófið?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 22/1/06 21:41

Það hlýtur að vera. Tímavélar eru ekki fyrir hrekkjusvín.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 23/1/06 16:30

Offari mælti:

Er það langtíma nám að fá ökuréttindi á tímavél.?
Þarf maður að vera með hrekklausan feril til að geta tekið prófið?

Þetta er eitt af því er koma þarf fram í lögum þeim er setja þarf um tímavjelar og tímaferðalög. Allar tillögur að lagagreinum eru vel þegnar. Í framhaldinu þarf síðan að semja langa, flókna, ítarlega og helst illskiljanlega (svo auðveldlega verði án skýrrar ástæðu hægt að neita óæskilegum aðilum um leyfi til tímaferðalaga) reglugerð.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 23/1/06 21:32

Er hér farið að blanda trúmálum inn í umræðuna?

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 23/1/06 21:51

Voru Guðirnir geimfarar?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 23/1/06 23:12

Offari mælti:

Það er rétt að stundum hagnast menn af óförum annara. Mistökin voru hinsvegar fundin upp til að læra af þeim, því hagnast maður af mistökum annara ef maður lærir af þeim. (Var ekki Guð sá snillingur sem skapaði mistökin í okkur?)

Vjer bendum þeim gestum í þræði þessum er telja sig vita af göllum í alheiminum á þennan þráð:

http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=3065

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: