Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta fréttastjóramál allt saman. Getur verið að Markús sé bara strengjabrúða fyrir geimverur, eða jafnvel að RÚV-húsið eins og það leggur sig sé í raun geimskip og allir þar innanborðs séu geimverur?
Ekki ólíklegt, hefur þú ekki séð alla gervihnattadiskana í garðinum hjá þeim? Ég spái því að skipið takist á loft nú seint á vormánuðum.
Útvarpshúsið minnir mig meira á svona varnarvirki, Magniot-línan eða eitthvað þess háttar. Kannski Markús muni vígbúist inni á skriftstofunni.
Það gæti auðvitað verið geimskip með sjerlega sterkbyggt varnarvirki. Auk þess minnir það í útliti og lit dálítið á hluta af geimskipi úr Star Wars.
Þessi kenning útskýrir líka tilhneigingu manna á þeim bænum til að ráða til sín utanaðkomandi fólk. Flestir gamlingjanna sem þarna starfa eru geimverur. Þeir vilja síðan auðvitað fá til sín jarðarbúa í vinnu, svo að þeir geti tekið með sér tilraunadýr þegar þeir halda til síns heima. Ef það á að heppnast, þá gengur vitanlega ekki að hækka gemverurnar æ ofan í æ í tign. Jarðarbúarnir verða að sjálfsögðu að koma að utan. Menn með viðskiptareynslu ku svo vera sérlega eftirsóttir til rannsókna sem og erfðafræðilegra tilrauna á heimaplánetunni.
Þetta gæti þá líka kannski útskýrt eitthvað um afnotagjöldin, sem fólk þarf að borga ef það hýsir sjónvarpstæki? Varla dettur nokkrum jarðarbúa slíkt í hug? Starir þegjandi út í loftið
Ég man eftir þegar að ég ætlaði einu sinni að kíkja þarna inn en þá fékk ég vægt stuð. Kom seinna í ljós að ég hafði gengið á Plasma skjöld.
Ég var bara alveg búinn að gleyma þessu. Spurning er hvort að plasma skjöldurinn hafi haft einhver áhrif á minnið...
Er ekki alveg öruggt að Óðinn Jónsson sje geimvera ?
Lengi hefur mig grunað að RÚV sé yfirvarp hrygglausra hamskiptageimvera. Þeim virðist þó hafa gengið grátbroslega illa að dulbúa sig sem mannverur. Lítið bara á Magnús Bjarnfreðsson, Ólaf Ófeiga og Markús Örn, hver með réttu ráði myndi trúa því að þessir tafsandi tuðrupokar fengju starf við fjölmiðla.
Af því að hann er svo skrýtinn
Af því að hann er svo skrýtinn
Áttirðu ekki við að hann sé skrýtin?
Jú, auðvitað Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
FFH er vissulega þarfleg umræða... en haldiði að það sé líf á öðrum hnöttum?
Ég hallast að því að svo hljóti að vera miðað við hina gríðarlegu stærð alheimsins.
Annars er mjög góð og ítarleg grein um þetta málefni hérna.
FFH er vissulega þarfleg umræða... en haldiði að það sé líf á öðrum hnöttum?
Já - hinsvegar bendir margt til að vitsmunalíf sje mjög sjaldgæft.
já, mikið rétt, sérstaklega hérna á jörðinni.
Góð vísbending um skort á vitsmunalífi er t.d. þegar fólk kann ekki að skrifa stóran staf í upphafi setninga.
Starir þegjandi út í loftið