— GESTAPÓ —
Merki um notkun tímavjela
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 27/9/05 14:22

Hann er að æfa sig. Hann á samt ekki nógu mikið af kóbalti til að komast til 2025.

Kannski, já ...bara
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kondensatorinn 3/10/05 02:42

Ef til vill þarf að strekkja tímareimina en svo er mál með vexti að eftir 23.09.05 hefi ég eigi ratað heim til híbýla minna og finn þau hvergi. Þetta gæti verið merki um notkun tímavjelar er ranglega kann að hafa verið stillt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/10/05 10:31

Eigi er ólíklegt að hjer gæti áhrifa tímavjela. Híbýli yðar eru þá hugsanlega ei orðin til eða þá að þau eru eigi lengur til. Mælum vjer með að þjer spyrjið næsta mann er þjer mætið hvaða ár sje.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Geypilega vel mælt!

- Hæstvirtur Lögfræðingur pirrandi félagsins - Þáttastjórnandi hinna sívinsælu Baggasveins og Baggasveinku þátta - Besservisser - Verndari rauðs pestós - Stofnandi og Skýjameistari H-menningarklúbbsins - Fósturmóðir Skoffíns - Unnusta Slopps -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hel að hurðarbaki 16/10/05 11:41

Myglar mælti:

Hérna rétt áðan birtist á miðju gólfi ritstjórnarskrifstofunnar fínasta tímavél. Eftir að hafa skoðað hana í nokkrar mínútur gerði ég mér grein fyrir að ég myndi sjálfur hafa sent hana, enda hinir á ritstjórn vart spjallfærir í tímarúmfræði. Ég stillti hana því á þann tíma sem hún hafði birst og sendi hana af stað, en ekki þó fyrr en ég hafði skroppið nokkur ár fram í tímann (og til baka aftur) og sent þennan póst. [Og fyrir þá sem eru að reyna að senda á þennan þráð þá virðist það ekki vera hægt, ég virðist hafa beyglað tímarúmið hérna eitthvað. Sjáum til hvort hægt er að laga þetta...]

Það verður væntanlega ekki hægt að senda á hann fyrr en eftir tvo áratugi eða svo. Tæknin hefur komið þér í koll...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/2/06 16:52

Ég er farinn að hafa áhyggjur af Myglari...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 24/2/06 14:47

Vjer líka. Eigi hefur hann sjest síðan í lok síðasta árs. Kannski óvinir ríkisins (jafnvel Hafþór Hübner) hafi rænt honum ? Eða kannski er hann fastur í framtíðinni eða fortíðinni (hið síðarnefnda er líklegra).

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 28/2/06 13:56

Kannski er hann fastur í tíma og rúmi. Eða kannski er hann bara í leynilegum erindagjörðum fyrir Baggalút eða Framsóknarflokkinn, nema hvoru tveggja sé.

Kannski, já ...bara
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 10/3/06 16:35

Mér sýnist sem Myglari sé farið að leiðast einveran á tímaflakkinu ef marka má þessa auglýsingu sem nokkuð öruggt er að hann hafi sent.

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 26/4/06 09:13

Ég er ekki að grínast, ég hef bullandi áhyggjur af Myglari...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr Zoidberg 26/4/06 10:47

Ég hef líka bullandi áhiggjur af Miglar. En getur verið að hann sé enn í haldi hins herskáa arms Hjálpræðishersins? http://www.baggalutur.is/dagbaekur.php?id=669

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/4/06 11:42

Vjer höfum líka miklar áhyggjur. Sje leitað að innleggjum Myglars sjest að innlegg hans í þessum þræði er frá einhverju ári er endar á 25. Jafnframt er þetta síðasta innlegg hans hjer á Gestapó.

Svo virðist miðað við innihald innleggsins sem um sje að ræða framtíði og þá líklega árið 2025 en eigi er það öruggt. Drögum vjer af þessu þá ályktun að tímavjel Myglars kunni að hafa bilað og að hann sitji fastur í fjarlægri framtíð. Er því hugsanlegt að snúi hann aftur verði hann eigi jafn forn í skoðunum og áður.

Annar möguleiki er að honum hafi verið rænt. Hjálpræðisherinn kemur þar til greina en einnig Hafþór Hübner eða jafnvel óvinir ríkisins ‹Fölnar upp við tilhugsunina›.

Teljum vjer fulla ástæðu til að hafin verði opinber, leynileg rannsókn á þessu alvarlega máli fyrir opnum tjöldum. Fyrsta skrefið er að kanna vitneskju ritstjórnar ‹Kemur fyrir örsmáum lygamælum út um allt og semur síðan fyrirspurn til ritstjórnar›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 26/10/08 16:10

‹Starir þegjandi út í loftið›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 26/10/08 16:12

Ég notaði tímavél í nótt.

‹Ljómar upp›

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 26/10/08 17:56

Sæll Myglar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 26/10/08 18:07

Tímavélin er bara bóla.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 26/10/08 22:43

Ah, já, Myglar. Hann hefur ekkert sést síðan... fyrren... hann sendi þetta innlegg, er það nokkuð? Ég er farin að sakna kauða.

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 26/10/08 22:47

Ég sýni augljós merki notkunar tímavélar.
Ég er alveg svakalega ungleg miðað við að vera orðin 5 ára!
‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: