Góðan daginn, ég vildi bara kynna mig. Ég heiti Helena og hef lesið Gestapó af og til en aldrei þorað að skrifa. Nú ákvað ég að drífa í því loksins, ég vona að ég standi mig ekki illa.
Velkomin Helena. Svakalega flottir eyrnalokkar sem þú berð og fara þér einstaklega vel.
Já, góðan daginn. Engar áhyggjur, ég held að þú komir til með að standa þig afar vel hér.
Brosir breitt
Sæl og blessuð fröken Helena. Velkomin á Lútinn, ég er Hakuchi, konungur. Láttu fara vel um þig og ég vona að þú munir blómstra hér á þessu merka spjallborði.
Varaðu þig á Frelsishetjunni. Hún á það til að missa sig þegar nýtt fólk mætir á svæðið.
Velkomin Helena, njóttu vel.
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomnar.
tekur ofan
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er myndin af yður þá fölsuð ?!
Ég var að koma inn úr gluggaveðrinu. Það er alls ekki eins hlýtt úti og ætla mætti. rjóður í kinnum
tekur ofan
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er myndin af yður þá fölsuð ?!
Hann er líklega með falskan topp...
Hann er líklega með falskan topp...
tekur höfuðleðrið að Natani En þú? Þú ert ekki einu sinni með höfuðleður.
Ég þakka hlýjar kveðjur í minn garð. Þetta er hinn föngulegasti hópur. brosir feimnislega
Heilsar
Láttu fara vel um þig og mundu að salernið er á þriðju hæð til vinstri.
Komdu sæl og blessuð Helena.